fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Sprengja úr yfirheyrslunni yfir Gishlaine Maxwell – Elon Musk og bróðir hans í Epstein-skjölunum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 27. júlí 2025 06:00

Elon Musk

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elon Musk og bróðir hans Kimbal eru meðal þeirra þekktu einstaklinga sem koma fyrir í skjölum Jeffrey Epstein-málsins að því er Mail on Sunday greinir frá. Fréttin kemur í kjölfar tveggja daga yfirheyrslu á Ghislaine Maxwell, sem nú afplánar 20 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum fyrir að hafa aðstoðað Epstein við mansal og kynferðislega misnotkun stúlkna.

Yfirheyrslan fór fram í alríkisdómshúsinu í Tallahassee í Flórída og er sögð hafa staðið yfir í níu klukkustundir. Þar svaraði Maxwell spurningum frá  aðstoðarríkissaksóknaranum Todd Blanche sem og frá fulltrúum FBI og ríkisstjórnarinnar. Hún var spurð ítarlega út í yfir 100 einstaklinga sem tengjast Epstein, þar á meðal Musk-bræðurna Elon og Kimbal, Andrew Prins, Bill Clinton, Bill Gates og  fjölda annarra valdamikilla manna úr fjármálalífi  Bandaríkjanna og tæknigeiranum.

Samkvæmt heimildum blaðsins naut Maxwell  friðhelgi gegn ákæru í skiptum fyrir samvinnu sína við yfirvöld. Þó er sá samningur háður því að hún segi satt og rétt frá.

Ghislaine Maxwell. Mynd/Getty

Sú uppljóstrun að Elon Musk sé í skjölunum þykir æði kaldhæðnislega í ljósi þess að hann hefur farið mikinn vegna málsins í umræðunum á samfélagsmiðlinum X og meðal annars sakað Donald Trump  um að hafa komið í veg fyrir birtingu skjalanna vegna þess að forsetinn væri sjálfur þar. Það er þó ekki ljóst hver eðlis tengsl Musk-bræðranna við Epstein voru en ljóst er að Maxwell hefur látið yfirvöldum í té eldfimar upplýsingar.

Donald Trump, sem skipaði Blanche til verksins, hefur lýst því yfir að hann hafi heimild til að náða Maxwell, en segist enn ekki hafa hugleitt slíkt alvarlega.  Blanche mun funda með Trump að loknu fimm daga ferðalagi forsetans til Skotlands, þar sem möguleg náðun eða mildun refsingar Maxwell verður tekin til umræðu gegn áframhaldandi samvinnu hennar við rannsókn Epstein-málsins.

Öryggisráðstafanir hafa verið hertar í fangelsinu þar sem Maxwell dvelur, þar sem hún hefur fengið fjölda hótana um líflát, líkt og fleiri sem tengjast málinu. Hafa margir áhyggjur af því að Maxwell hljóti sömu örlög og níðingurinn Epstein sem fannst látinn í fangaklefa sínum í New York árið 2019. Opinber dánarorsök var sjálfvíg en fjölmargir eru sannfærðir um að Epstein hafi verið ráðinn af dögum af valdamiklum aðilum.

Maxwell hyggst í dag leggja fram áfrýjun til Hæstaréttar Bandaríkjanna í máli sínu. Þegar hún hlaut dóm í málinu á sínum tíma ákvað hún ekki að gefa skýrslu en hún hefur haldið því fram núna að alltaf hafi staðið til að segja sannleikann allan í málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn