Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalista, virðist hafa staðið af sér storm sem skapaðist um meinta hegðun hans á stefnumótaforritinu Grindr. Það var þó ekki átakalaust því samkvæmt heimildum DV var talsvert tekist á um málið innanbúðar í flokknum. Þá sendu ungliðar á Norðurlandi frá sér ályktun þess efnis að nýi formaðurinn ætti að stíga til hliðar vegna málsins. Sú ályktun var hins vegar dreginn tilbaka samkvæmt heimildum eftir að hafa vakið nokkurn usla.
Eins og DV fjallaði um þann 27. maí síðastliðinn þá fóru skjáskot af meintum kynferðislegum samskiptum Sæþórs við ólögráða dreng í dreifingu í kjölfar þess að hans fólk vann kosningasigur á aðalfundi Sósíalistaflokksins nokkrum dögum fyrr.
Sæþór steig í kjölfarið fram, sagði skjáskotin fölsuð og tilgangurinn væri sá að koma pólitísku höggi á hann. Síðar kærði hann dreifingu skjáskotanna til lögreglu.
Margir draga þó þessar skýringar í efa í ljósi þess að skjáskotin fóru fyrst í dreifingu á umdeildri Telegram-síðu, sem tengist tálbeituhópum, í mars á þessu ári. Framboð Sæþórs var vel þekkt og því hefur verið bent á að ef tilgangurinn væri sá að veita honum pólitískt högg þá hefði verið vænlegra til árangurs að birta slíkt fyrir aðalfund en ekki eftir hann.
Opinberun málsins olli þó nokkrum titringi bak við tjöldin hjá sósíalistum og varð talsverð umræða um að Sæþór ætti að stíga til hliðar á meðan málið yrði skoðað og öll kurl væru komin til grafar. Þá treysti framkvæmdastjórn sér ekki til að senda frá sér opinbera stuðningsyfirlýsingu til handa Sæþóri.
Einharðastir í þeirri afstöðu að Sæþór ætti að stíga til hliðar voru liðsmenn Dögunar- félags ungra sósíalista á Norðurlandi en sá félagskapur var stofnaður í marslok á þessu ári og eru forsvarsmenn hans vel tengdir inn í þann hóp sem nú stýrir för hjá Sósíalistum. Þannig voru þrír í stjórn Dögunar kosnir í hinar ýmsu stjórnir flokksins á nýliðnum aðalfundi.
Samkvæmt heimildum DV sendi Dögun ályktun til framkvæmdastjórnar flokksins þar sem farið var fram á að Sæþór myndi stíga til hliðar. Ályktunin féll í grýttan jarðveg og herma sömu heimildir að ályktunin hafi verið dregin tilbaka nokkru síðar.
DV bar málið undir Elvar Fossdal, formann Dögunar sem einnig situr í málaefnastjórn flokksins, en hann kaus að tjá sig ekki. „Við höfum samþykkt það okkar á milli, löngu áður en þetta mál kom upp að við munum ekki ræða slíkt opinberlega,“ sagði Elvar í stuttu samtali.
Að endingu var niðurstaðan sú að Sæþór myndi sitja sem fastast en hermt er að lítið meira þurfi að koma uppá til þess að formannstíð hans verði stutt.
Uppfært kl.15.53: Í kjölfar birtingu fréttarinnar hafði Elvar Fossdal samband og sagði það misskilning að ályktun Dögunar hefði verið dregin tilbaka.