fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 27. júní 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þarna er dallur undir sprautanálar sem hefur verið settur upp í fimm metra fjarlægð frá barnaleikvelli. Hér eru óvitar og litlir krakkar að leika sér og ekki ólíklegt að þau geti séð þennan dallog tekið hann eða opnað hann. Nálægðin er rosalega óeðlileg, þetta er alvarlegt,“ segir áhyggjufullur faðir níu ára stúlku.

Barnið dvelst hjá móður sinni aðra hvora viku og hina vikuna heima hjá föðurnum. Móðirin býr í leiguhúsnæði í blokk við Írabakka sem er í eigu Félagsbústaða. Þar hafa sumir íbúar valdið nágrönnum sínum gífurlegu ónæði.

„Hér er óregla en hér eru líka barnafjölskyldur og rólegheitafólk með allt sitt á hreinu. Mesta ónæðið er af einum einstaklingi og liðinu sem þeim aðila fylgir. Það er mikið ónæði og hávaði, en líka ógnanir og rúðubrot. Það hefur verið margkvartað yfir ástandinu til Félagsbústaða sem gera ekkert í því og eru hættir að svara fyrirspurnum um þetta. Félagsbústaðir ættu að geta tekið á þessu með einhverjum ráðum.“

Fréttir hafa verið birtar á undanförnum mánuðum um útburð leigjenda úr íbúðum Félagsbústaða sem ekki hafa staðið í skilum með leigu. Faðirinn veltir því hins vegar fyrir sér hvort leigjendur Félagsbústaða geti hagað sér að vild svo lengi sem þeir greiða leigu.

Hann undrast mjög að sprautudallurinn hafi verið settur upp. „Þetta er prófessjónal atriði til að ganga frá sprautunálum. Ég veit að teymi frá Reykjavíkurborg hefur verið að vinna með þennan einstakling, sem er mjög veikur, það verður bara að segjast eins og er, en ég trúi því varla að þetta hafi verið sett upp frá þeim. Það væri rosalegt,“ segir maðurinn sem telur að skaðaminnkunarúrræði eigi ekki heima innan um bústaði fjölskyldufólks.

Hann kallar eftir því að Félagsbústaðir bregðist betur við kvörtunum undan ófriðsömum leigjendum í blokkinni við Írabakka.

Athugasemd: Í eldri útgáfu fréttarinnar segir að dallurinn undir sprautunálar sé merktur Geislavörnum ríkisins. Þetta er ekki rétt og er beðist velvirðingar á þessu. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“
Fréttir
Í gær

Sigurður Ingólfsson er látinn

Sigurður Ingólfsson er látinn
Fréttir
Í gær

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“