Þetta sagði Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, í umræðu undir dagskrárliðnum störf þingsins á Alþingi í morgun. Vísaði Rósa þarna í hóp fólks sem kom saman á Austurvelli í gær, á þjóðhátíðardaginn 17. júní, með fána Palestínu.
Í frétt Morgunblaðsins um málið í gær sagði að hópurinn hafi samanstaðið af 10-20 einstaklingum. Í fréttinni sagði síðan:
„Þegar æðsta stjórn ríkisins gekk að Alþingishúsinu að loknum hátíðarhöldum fór mótmælendahópurinn að hrópa „þjóðarmorð“ og „frjáls Palestína“. Þegar ráðamenn voru komnir inn í þinghúsið hóf einn mótmælandi að flytja ræðu.”
Í ræðu sinni á Alþingi í morgun sagði Rósa að hingað til hafi Íslendingar sammælst um að leggja stjórnmál og deilur til hliðar og hampa þess í stað því sem sameinar okkur, gildin okkar, menninguna, upprunann, hefðirnar og sérstöðuna.
„Og það undir merkjum íslenska þjóðfánans sem við erum svo stolt af og umgöngumst af mikilli virðingu. Að hópar fólks skuli koma saman á þessum degi og það við hátíðarhöld við Alþingishúsið, veifandi fána annars lands og hrópa ókvæðisorð að ráðamönnum og öðrum viðstöddum er óboðlegt,” sagði Rósa í ræðu sinni og hélt áfram:
„Í gær urðum við vitni að því að þjóðhátíðardeginum okkar var sýnd mikil vanvirðing hér við Austurvöll og um leið þjóðfána okkar Íslendinga. Eigum við bara að láta slíkt viðgangast? Það eru næg tækifæri á Íslandi fyrir einstaklinga og hópa að koma pólitískum sjónarmiðum á framfæri alla aðra daga. Hvorki er staður né stund fyrir það á þjóðhátíðardaginn okkar,“ sagði Rósa sem endaði ræðuna á þessum orðum:
„Getum við ekki verið sammála um að íslenska þjóðin fái að fagna lýðveldisafmælinu og hampa þjóðfána sínum í friði? Þetta var dapurleg tilraun til að niðurlægja íslensku þjóðina og hrein vanvirðing við þjóðfánann. Komum í veg fyrir svona atburði á þjóðhátíðardaginn okkar í framtíðinni og berum öll virðingu fyrir þessum mikilvæga hátíðisdegi.“