fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Fréttir

Bandarísk kona stórslasaði eiginmanninn og tvo landa sína á Vesturlandsvegi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. júní 2025 20:00

Slysið varð á Vesturlandsvegi, nánar til tekið í Norðurárdal skammt frá Norðurá. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk kona hefur verið sakfelld í Héraðsdómi Vesturlands fyrir að hafa með gáleysislegum akstri og með því að hafa sofnað undir stýri slasað þrjá einstaklinga alvarlega í árekstri sem varð á Vesturlandsvegi, nánar tiltekið í Norðurárdal, 2023. Afleiðingarnar urðu þær að eiginmaður hennar, sem er suður-kóreskur og var farþegi í bílnum, slasaðist mikið en einnig slösuðust bandarísk hjón í hinni bifreiðinni illa en áverkarnir sem þau hlutu í slysinu hafa sett varanlegt mark á líf þeirra.

Bílnum var ekið í suður um Vesturlandsveg. Samkvæmt ákæru ók konan bifreiðinni yfir á öfugan vegarhelming með þeim afleiðingum að árekstur varð við hina bifreiðina sem var á norðurleið en áreksturinn átti sér stað 2023.

Bandaríski eiginmaðurinn sem ók hinum bílnum fékk talsverð brot á spjaldbeini beggja vegna og hryggtindabrot í lendhrygg. Kona hans, sem var farþegi í bílnum, fékk skurð á hægra gagnauga, brot í nærhluta ölnar og liðhlaup á höfði sveifar á hægri handlegg, liðhlaup og brot efst í nærkjúku í þumalfingri hægra megin og liðhlaup í vísifingri vinstri handa, brot í miðhandarbeini og neðst í handarbeini hægrihandar, brot á hægri lærlegg og ótilfært brot í nærenda sköflungs, brot á brjóstbeini og hlutaliðhlaup á nærenda viðbeins, rifbrot hægra megin og áverka á ristli.

Eiginmaður konunnar sem sofnaði undir stýri, fékk mar hægra megin á brjóstkassa, hægri fótlegg og mjaðmagrind, brot í nærenda lærleggjar með töluvert tilfærðum brothlutum, brot á hnéskel og brot á ökkla og framristarbeinum.

Sofnaði

Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var konan sem var farþegi í hinum bílnum föst í honum og beita þurfti klippum til að ná henni út.

Konan sem ákærð var í málinu viðurkenndi á vettvangi og svo í kjölfarið í skýrslutöku fyrir lögreglumönnum að hún hefði sofnað undir stýri. Eiginmaður hennar gekkst fljótlega eftir komuna á bráðamóttöku Landspítalans undir aðgerð á hinum brotna lærlegg.

Auk áðurnefndra brota hlaut bandaríski karlmaðurinn, sem ók hinum bílnum, blæðingu í vöðva.

Kona hans fékk alvarlegustu áverkana, sem áður hafa verið nefndir, en hún var meðvitundarlaus þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang. Vegna áverkanna sem hún hlaut á ristli þurfti að fjarlægja hluta af honum og setja upp stóma. Vegna lærleggsbrotsins þurfti hún mergnagla í legginn og gæti þurft í aðra aðgerð út af honum. Segir í dómnum að áverkarnir sem konan hlaut hafi verið lífshættulegir og hún þurft að fara í tvær lífsbjargandi aðgerðir. Muni hún að öllum líkindum þurfa að glíma við afleiðingar slyssins ævilangt.

Hafi verið úthvíld

Fyrir dómi vildi konan sem varð völd að slysinu meina að hún hafi verið vel úthvíld áður en hún hóf aksturinn en muni ekki hvað gerðist rétt fyrir slysið. Sagðist hún ekki muna eftir því að hafa tjáð lögreglu að hún hefði sofnað undir stýri. Hún sagðist enn fremur ekki vera haldin neinum sjúkdómi sem gæti skýrt það sem gerðist og það væri mjög ólíkt henni að sofna undir stýri.

Eiginmaður hennar gaf einnig skýrslu fyrir dómi. Þegar slysið hafi átt sér stað hafi hann verið að horfa á kort og hefði ekki tekið eftir neinu undarlegu í fari konu sinnar. Örskömmu áður en slysið varð hafi hún skyndilega öskrað og hann þá litið upp og séð eitthvað svart stefna á bílinn. Hann hefði ekki fylgst með akstri hennar og gæti ekki svarað því hvernig slysið átti sér stað. Sagði maðurinn að hann hefði nú jafnað sig að fullu eftir slysið. Sagðist hann ekki hafa tekið eftir því að kona sín hefði sofnað eða dottað undir stýri.

Konan í hinum bílnum gaf mjög ítarlegan vitnisburð fyrir dómi og sérstaklega er tekið fram að aðeins sé getið þess helsta sem hún hafi sagt og hafi þýðingu fyrir úrlausn málsins. Sagðist hún ekkert muna eftir þeim tíma sem leið frá því tveimur dögum fyrir slysið og þar til sjö til tíu dögum eftir það, þegar hún vaknaði á Landspítalanum. Lýsti hún sumum áverkunum sem hrikalegum og sagði að eftir komuna heim til Bandaríkjanna hafi hún þurft mikla aðstoð við athafnir daglegs lífs sem hafi verið niðurlægjandi. Hún væri með stöðuga verki í lærleggnum og brotið í honum hafi ekki enn gróið vel. Hún finni alltaf vel fyrir pinnanum sem settur var í lærlegginn ekki síst í kulda.

Málmur í olnboga og handlegg

Í Bandaríkjunum gekkst konan undir aðgerð til að laga brotin í öðrum handleggnum. Hún fékk málmolnboga og einnig var sett málmplata sem tengist við framhandlegginn.

Bætti hún því við að hún hefði fengið djúpa skurði á kviðinn eftir sætisbeltið, sem ekki hafi verið hægt að sauma. Skurðunum hafi þurft að pakka með grisjum daglega sem vinkona hennar hafi skipt um á hverjum degi í þá sjö mánuði sem það hafi tekið fyrir skurðina að gróa.

Konan var á Landspítlanum í mánuð og svo þegar til Bandaríkjanna var komið í tvær vikur á sjúkrahúsi og aðrar tvær á endurhæfingarsjúkrahúsi. Á meðan hafi móðir hennar veikst alvarlega en hún hafi ekki treyst sér til að heimsækja hana daginn sem sjúkrahúsvistinni lauk. Daginn eftir útskriftina af endurhæfingarsjúkrahúsinu hafi móðir hennar dáið og því hafi þær aldrei hist síðustu tvo mánuðina sem hún lifði. Hún ætti sömuleiðis mjög erfitt með að hugsa um barnabarn sitt. Vegna meiðslanna á þumlinum, sem væri enn laus í liðnum, ætti hún erfitt með að sinna starfi sínu sem ljósmyndari. Sagðist konan vera með verki alla daga og vera hrædd í umferðinni.

Maður konunnar mundi vel eftir slysinu. Hann sagði vatn hafa verið þeim hjónunum á hægri hönd. Hinn bílinn hafi sveigt í veg fyrir þau en hann þá sveigt til vinstri til að forða því að sveigja í átt að vatninu og þá hafi bifreiðarnar skollið saman. Sagðist hann hafa sveigt eins hratt og hann gat og þannig náð að forða því að þau myndu skella beint framan á hinum bílnum.

Enginn hreyfanleiki

Maðurinn sagði afleiðingar slyssins fyrir hann vera þær að hann hefði engann hreyfanleika í hægri fæti og ekki sé hægt að laga það með aðgerð. Hann sé með daglega verki og taki verkjalyf tvisvar á dag en geri líka æfingar sem læknar á Landspítalanum hafi ráðlagt honum að gera. Sagðist maðurinn vera með samviskubit yfir því að hafa ekki getað forðað slysinu og ekki getað hugsað um konu sína á meðan hún glímdi við afleiðingar þess en væri afar þakklátur fyrir aðstoð fjölskyldu þeirra og vinkonu konunnar.

Hjónin sögðust bæði vera þakklát að hafa lifað af og að þau reyndu sitt besta til að halda í gleðina þrátt fyrir alla erfiðleikana.

Í niðurstöðu héraðsdóms segir að konan sem olli slysinu hafi viðurkennt bæði á vettvangi og í skýrslutöku tveimur dögum síðar, að viðstöddum túlki og lögmanni, að hún hefði sofnað undir stýri þótt hún hafi síðar dregið í land hafi hún engar aðrar skýringar getað gefið á slysinu. Framburður mannsins, sem ók hinum bílnum, um að hún hafi farið yfir á rangan vegarhelming áður en slysið varð og svo aftur rétt í þann mund sem það átti sér stað sé studdur gögnum málsins. Ummerki á vettvangi staðfesti að hún hefði farið yfir á rangan vegarhelming. Engin merki séu um að aðstæður á vettvangi eða bilanir í bílnum hafi orsakað slysið. Vill dómurinn meina að viðbrögð mannsins að sveigja til vinstri til að reyna að forðast árekstur hafi verið eðlileg í ljósi þess að hægra megin hafi verið hin vatnsmikla Norðurá. Þar að auki hafi þeim meginn verið vegrið.

Telur dómurinn ljóst að konan hafi með háttsemi sinn valdið slysinu með því að sofna undir stýri og sýna af sér stórkostlegt gáleysi. Þar sem um óviljaverk var að ræða þótti við hæfi að dæma konuna í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Hjónin kröfðust 5 milljóna króna í miskabætur hvort um sig en við hæfi, miðað við alvarlegar afleiðingar slyssins, þótti að dæma konuna til að greiða eiginkonunni 900.000 krónur en eiginmanninum 600.000, auk vaxta og dráttarvaxta, þar sem hennar áverkar voru alvarlegri.

Dóminn í heild sinni má lesa hér.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak
Fréttir
Í gær

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið
Fréttir
Í gær

Haugafullur þýskur öldungur gerði óskunda á Seyðisfirði

Haugafullur þýskur öldungur gerði óskunda á Seyðisfirði
Fréttir
Í gær

Kraftaverk í Indlandi: Breskur maður lifði flugslys Air India af og hlaut aðeins minniháttar skrámur

Kraftaverk í Indlandi: Breskur maður lifði flugslys Air India af og hlaut aðeins minniháttar skrámur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alvarlegt flugslys í Indlandi – Full vél á leið til London Gatwick brotlenti

Alvarlegt flugslys í Indlandi – Full vél á leið til London Gatwick brotlenti