fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Fréttir

Alþjóðlegt þjófagengi herjaði á íslenskar verslanir

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 11. júní 2025 13:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórar manneskjur, þrjár konur og einn karlmaður, hafa verið sakfelldar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir samtals 43 þjófnaði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Allt fólkið ber erlend nöfn en tvær kvennanna virðast vera með íslenskt ríkisfang og eru mæðgur en afmáð hefur verið úr dómnum í hvaða landi þriðja konan og karlmaðurinn eru með ríkisborgararétt. Verðmæti þess sem fókið stal var samtals um 2 milljónir króna.

Karlmaðurinn var ákærður fyrir að hafa á síðasta ári stolið sjö sinnum úr verslunum Krónunnar en hæsta upphæðin sem hann stal fyrir var 38.267 krónur.

Önnur kvennanna með íslenskt ríkisfang, dóttirin, var ákærð fyrir að hafa frá ársbyrjun 2023 og fram í júní 2024 stolið sjö sinnum úr verslunum Krónunnar og einu sinni úr verslun Hagkaupa. Hæsta upphæðin sem hún stal fyrir í þessi skipti var rétt undir 70.000 krónum.

Dóttirin og karlmaðurinn voru síðan ákærð í sameiningu fyrir að stela alls átta sinnum á síðasta ári úr verslunum Bónus, Krónunnar, Elko og Hagkaupa. Hæsta upphæðin sem þau stálu fyrir í þessi skipti var rétt yfir 88.000 krónum, úr verslun Bónus í Breiðholti.

Dóttirin virðist hafa verið stórtækust í hópnum því hún var einnig ákærð ásamt konunni með erlenda ríkisfangið fyrir að hafa stolið 13 sinnum úr verslunum Hagkaupa í Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni og Spöng, í desember 2022 og janúar 2023. Hæsta upphæðin sem þær stálu fyrir var 134.184 krónur en það var úr versluninni í Skeifunni.

Móðirin

Dóttirin var síðan ákærð ásamt áðurnefndri móður sinni fyrir að hafa í 4 skipti í janúar 2023 og febrúar 2024 stolið úr verslunum Hagkaupa og Bónus. Hæsta upphæðin sem þær stálu fyrir var 77.480 krónur.

Mæðgurnar voru síðan ákærðar ásamt konunni með erlenda ríkisfangið fyrir að hafa í tvö skipti í desmber 2022 og janúar 2023 stolið úr verslunum Hagkaupa. Í fyrra skiptið stálu þær vörum að verðmæti 196.433 krónur.

Mæðgurnar voru síðan ákærðar í annarri ákæru fyrir að hafa stolið í eitt skipti úr verslun Elko.

Alls var fólkið því ákært fyrir að stela í samtals 43 skipti en sú stórtækasta úr hópnum, dóttirin, var ákærð fyrir 36 brot.

Fyrirtækin kröfðust bóta fyrir hvern og einn þjófnað.

Játning og flótti

Mæðgurnar og karlmaðurinn játuðu sök í öllum ákæruliðum en konan með erlenda ríkisfangið mætti ekki fyrir dóm.

Dóttirin, sem framdi flest brotanna eins og fram hefur komið 36 talsins, stal samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms fyrir samtals 1.781.683 krónur. Við ákvörðun refsingar var hins vegar litið til játningar hennar og ungs aldurs og þótti við hæfi að dæma hana í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hún samþykkti allar bótakröfur á hendur henni.

Móðirin var dæmd fyrir samtals sjö þjófnaði. Hún hafði verið með hreint sakarvottorð eins og dóttir sín en við ákvörðun refsingar var eins og í tilfelli dótturinnar horft til þess að brotin voru framin í samvinnu við aðra. Verðmæti þess sem hún stal var samtals 476.669 krónur. Við hæfi þótti að dæma hana í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Ungur

Karlmaðurinn var dæmdur fyrir samtals 15 þjófnaði. Hann játaði þá alla en við ákvörðun refsingar var horft til þess sem og ungs aldur hans en á móti til þess að hluta brotanna framdi hann í samvinnu við dótturina. Verðmæti þess sem hann stal var samtals 548.754 krónur. Hann eins og mæðgurnar samþykkti allar bótakröfur.

Konan með erlenda ríkisfangið mætti eins og áður segir ekki fyrir dóm en eins og venjan er þegar slíkt gerist var það metið sem ígildi jántingar. Hún var dæmd fyrir samtals 15 þjófnaði. Við ákvörðun refsingar var horft til ungs aldur hennar en á móti til þess að brotin höfðu öll verið framin í samvinnu við aðra. Verðmæti þess sem hún stal nam 933.199 krónum. Eins og hin þrjú hafði hún ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi. Við hæfi þótti því að dæma hana í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða allar bótakröfur sem gerðar voru á hendur henni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Embla Medical hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Ragnar Kjartansson heiðraður

Embla Medical hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Ragnar Kjartansson heiðraður
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kröfu um atvinnurekstrarbann Ásgeirs til þriggja ára hafnað

Kröfu um atvinnurekstrarbann Ásgeirs til þriggja ára hafnað
Fréttir
Í gær

Sambýliskona fékk ekki viðurkenndan rétt til séreignarlífeyrissparnaðar látins maka

Sambýliskona fékk ekki viðurkenndan rétt til séreignarlífeyrissparnaðar látins maka
Fréttir
Í gær

Hart tekist á um Kópavogsleiðina eftir að móðir tveggja barna greindi frá svimandi kostnaði – „Vonlaus leið, þessi Kópavogsleið“

Hart tekist á um Kópavogsleiðina eftir að móðir tveggja barna greindi frá svimandi kostnaði – „Vonlaus leið, þessi Kópavogsleið“