fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Fréttir

Brúðkaupsmynd versta barnaníðings sögunnar – Hávært ákall er um að eiginkonan svari einnig til saka

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 29. maí 2025 22:00

Le Scouarnec-hjónin á brúðkaupsdaginn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fallegum sumardegi þann 29. júní 1974 gengu hinn 23 ára gamli Joel Le Scouarnec og hin tvítuga Marie-France Lhermitte í hjónaband í frönsku hafnarborginni Saint-Nazaire. Framtíðin blasti við þeim, Le Scouarnec var við það að útskrifast sem læknir og Marie var í námi sem hjúkrunarfræðingur. Þau áttu bæði eftir að þéna vel í störfum sínum, kaupa glæsilegt setur til að búa í og eignast þrjá heilbrigða syni.

Undir yfirborðinu var þó ekki allt með felldu. Bæði höfðu þau alist upp við hrottalegt heimilisofbeldi feðra sinna. Samt hefðu fæstir getað ímyndað sér að Joel myndi umbreytast í einn versta barnaníðing sögunnar.

Síðastliðinn miðvikudag kom loks að skuldadögum hjá Joel á 74. aldursári. Hann var þá dæmdur í 20 ára fangelsi, sem er hámarks refsing samkvæmt frönskum lögum,  fyrir að kynferðislega misnota 299 börn yfir tæplega þriggja áratuga skeið. Elsta fórnarlambið var 15 ára en hið yngsta aðeins fjögurra. Hann gekkst við öllum brotunum, þar af var um að ræða 111 nauðganir.

Þóttist ekki sjá glæpi eiginmannsins

Le Scouarnec var virtur læknir og hann réðst til atlögu við fórnarlömb sín þegar þau voru sofandi eftir aðgerðir eða við það að vakna og illa áttuð. Við réttarhöldin var honum lýst sem djöflinum og versta barnaníðingi sögunnar.

Eiginkona hans Marie fylgdist með réttarhöldunum þrátt fyrir að hafa mátt þola mikla gagnrýni. Hún hefur verið sökuð um að líta framhjá því að hún væri gift hrottalegum níðingi. Hávært ákall er í gangi um að hún verði sjálf ákærð fyrir þátt sinn í glæpum fyrrum eiginmannsins.

Í umfjöllun Daily Mail um fortíð Le Scouarnec-hjónanna er, eins og áður segir, fjallað um dökka fortíð þeirra. Marie varð fyrir því að tveir eldri frændur hennar misnotuðu hana og Joel bjó á brotnu heimili þar sem hræðilegir hlutir áttu sér stað, meðal annars kynferðisleg misnotkun.

Þrátt fyrir að allt virtist slétt og fellt á yfirborðinu þá var samband hjónanna stormasamt. Við réttarhöldin kom fram að Joel hefði fyrst fundið barnagirndina heltaka sig þegar hann umgekkst barnunga systurdóttur sína árið 1985. Hún hafi sóst í félagsskap hans og sest í kjöltu hans. Sambandið við Marie var í molum á þessari stundu segist Joel hafa yfirfært kynlöngun sína yfir á saklaust barnið. Eftir það var ekki aftur snúið, Joel hafði hleypt skrímslinu lausu.

Kenndi barninu um að hafa dregið eiginmanninn á tálar

Hann hóf að misnota frænku sína með reglubundnum hætti og það nöturlega var að bæði eiginkona hans, sem og systir hans Sylvia, virtust meðvitaðar um hvað gekk á. Sylvia hefur sjálf reynt að afsaka aðgerðarleysi sitt með því að halda því fram að hún hafi eiginlega frosið því að sjálf þurfti hún að upplifa hrottalega misnotkun sem barn.

Marie fór að halda við Patrick, bróður Joel og sparkaði í raun lækninum frá hjónasænginni. Um þetta leyti uppgötvaði hún skúffu sem var full af barnaníðsefni en þrátt fyrir það tilkynnti hún eiginmann sinn ekki til lögreglunnar.

Við réttarhöldin sagði Patrick að Marie hefði verið ástfanginn af launaseðli Joel og kosið að halda hjónabandinu áfram en hélt þess í stað við fjölmarga menn. Hún ætti skilið að svara fyrir aðgerðarleysi sitt.

Þá kom einnig fram við réttarhöldin að Marie hefði sagt innan um vitni að allir karlmenn væru hrifnir af litlum stelpum. Þá kenndi hún barnungri frænku sinni um að hafa dregið eiginmann sinn á tálar.

Joel mun eyða því sem eftir er ævi sinni á bak við lás og slá og hávær köll eru uppi um í frönsku samfélagi að Marie verði líka dregin fyrir dóm. Hún lifir í vellystingum á heimili þeirra og er sú eina í fjölskyldunni sem enn heimsækir barnaníðinginn í fangelsið.

 

 

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Þeir eru kallaðir „síðustu 500“ og eru vaxandi vandamál fyrir stríðsrekstur Pútíns

Þeir eru kallaðir „síðustu 500“ og eru vaxandi vandamál fyrir stríðsrekstur Pútíns
Fréttir
Í gær

Fór í tannaðgerð í Tyrklandi og sér eftir því – „Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig“

Fór í tannaðgerð í Tyrklandi og sér eftir því – „Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig“