fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fréttir

Allt á suðupunkti í Genf fyrir örlagafund á morgun – Verður Ísrael vikið úr Eurovision?

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 3. desember 2025 17:00

Ísraelar beittu þrýstingi til að fá sitt lag kosið í vor.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt er á suðupunkti í heimi Eurovision vegna fundar EBU sem haldinn verður á morgun í Genf í Sviss þar sem tekin verður ákvörðun um þátttöku Ísraels í keppninni. Íslendingar fara fram á að Ísrael verði vikið úr keppninni.

Ekki liggur fyrir hvort að atkvæðagreiðsla fer fram eða ekki á fundi EBU sem fram fer í Genf á fimmtudag, 4. desember.

Nýjar reglur

Á fundinum verður einnig rætt um nýjar reglur sem setja á til að koma í veg fyrir að ríkisstjórnir eða þriðju aðilar geti beitt sér fyrir ákveðnu lagi. En flestum var augljóst að Ísraelar beittu miklum þrýstingi til að koma sínu lagi áfram í keppninni síðastliðið vor. Hafa Ísraelar, sem höfnuðu í öðru sæti í keppninni, einnig verið sakaðir um svindl í síma og netkosningunni.

Eins og kemur fram í frétt Reuters um málið verður atkvæðagreiðsla um þátttöku ríkja í keppninni ef aðildarríkin telja að hinar nýju reglur dugi ekki til að girða fyrir svindl eða óeðlilegan þrýsting. Ísrael er ekki nefnt sérstaklega en flestum er ljóst að átt sé við það land.

Flokkadrættir

Ísland, Slóvenía, Spánn, Írland og Holland hótuðu í haust að draga sig úr Eurovision ef Ísrael fengi að taka þátt. Það er vegna stríðsins og þjóðarmorðsins á Gaza ströndinni. Ísland hefur ítrekað hótun sína, jafn vel þó að vopnahlé hafi verið samþykkt á Gaza. En Ísraelar hafa ítrekað gerst sekir um að brjóta vopnahléið og fella óbreytta palestínska borgara, þar á meðal börn.

Sjá einnig:

Norðurlöndin funda í Reykjavík um afstöðuna til Ísrael í Eurovision – Verður reynt að ná samstöðu?

Á hinum endanum eru lönd á borð við Þýskaland, Austurríki og Sviss sem hafa hótað að taka ekki þátt í Eurovision verði Ísraelum meinuð þátttaka. Hafa Austurríkismenn einnig hótað að neita að halda keppnina í vor.

Norðmenn hafa lýst því yfir að þeim lítist vel á reglubreytingarnar sem gera á og telja þær fullnægjandi fyrir sitt leyti.

Vatnaskil

„Við vonum innilega að þessi reglupakki fullvissi aðildarríki um að við stöndum vörð um hlutleysi og óhlutdrægni söngvakeppninnar,“ segir í tilkynningu EBU.

Paul Jordan, sérfræðingur í málefnum Eurovison, segir að fundurinn á morgun verði vatnaskil fyrir keppnina. „Þetta er alvarleg krísa fyrir Eurovision og EBU… ég held að það verði líklega atkvæðagreiðsla um málið,“ segir Jordan.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“