

Ásgeir Elvar Garðarsson framkvæmdastjóri Bílaleigunnar Geysis hefur tilkynnt að hann sækist eftir oddvitasætinu á lista Sjálfstæðiflokksins í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Segist hann ætla að beita sér fyrir að bærinn verði rekinn meira eins og skilvirkt fyrirtæki.
Prófkjör um oddvitasætið verður haldið þann 31. janúar næstkomandi en uppstillingarnefnd mun stilla upp í önnur sæti listans.
Í framboðstilkynningu Ásgeirs á Facebook segir meðal annars að hann búi ekki yfir áralangri reynslu úr stjórnmálum, þótt hann hafi fylgst mjög vel með og tekið virkan þátt í samfélaginu. Ný nálgun sé nauðsynleg fyrir sveitastjórnarstigið. Reykjanesbæ þurfi að reka meira eins og skilvirkt fyrirtæki og minna eins og opinbera, hægfara stofnun. Það sé ekki nóg að reksturinn líti vel út á blaði þegar bæjarbúar upplifi algjöra andstæðu á eigin skinni.
Ásgeir hefur lokið prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Eiginkona hans er Gígja Sigríður Guðjónsdóttir sem sjálf hefur komið töluvert að starfi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ en hún var í sjötta sæti á lista flokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Hún sat framan af kjörtímabilinu í menntaráði bæjarins en færði sig síðastliðið vor yfir í menningar- og þjónusturáð. Það kemur ekki fram í tilkynningu Ásgeirs hvort eiginkona hans sækist eftir áframhaldandi setu á listanum og raunar minnist hann ekkert á það yfirhöfuð að hún sé varabæjarfulltrúi.
Gígja hefur gagnrýnt stöðu leikskólamála í Reykjanesbæ og í framboðstilkynningu Ásgeirs segir að þau hjónin eigi saman tvö börn á leik- og grunnskólaaldri og þar af leiðandi hef hann upplifað frá fyrstu hendi þau endurteknu vandræði sem Reykjanesbær hafi átt í þegar komi að skólamálum. Með breyttum áherslum séu það hins vegar verkefni sem hafi verið sýnt fram á áður að vel megi leysa.
Hann segist hafa alist upp í metnaðarfullu samfélagi með skýra stefnu. Reykjanesbær hafi verið líflegur fjölskyldu-, íþrótta- og menningarbær. Þá hafi stefna bæjarins verið að reka bestu skóla landsins og með skýrum, mælanlegum markmiðum hafi náðst markverður árangur.
Reykjanesbær sé vagga íslenskrar tónlistar- og íþróttamenningar og bærinn megi aldrei hætta að rækta sín sérkenni. Bærinn standi á krossgötum. Hann búi yfir miklum tækifærum með aðgengi að einstökum innviðum í kringum alþjóðaflugvöll og stórskipahöfn en því miður hafi ekki tekist nógu vel að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf í bænum. En það sé hægt að breyta því. Til þess að gera Reykjanesbæ að spennandi fjárfestingakosti þurfi skilvirka stjórnsýslu sem ryðji veginn fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Ásgeir er annar maðurinn sem býður sig fram í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Þegar hafði Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóri Háaleitisskóla, eins af grunnskólum bæjarins, tilkynnt um framboð.
Vilhjálmur Árnason þingmaður flokksins og íbúi í bænum hefur einnig verið sterklega orðaður við framboð og sagst vera áhugasamur en hann hefur þó ekki tekið af skarið um hvort hann ætli að bjóða sig fram.
Eftir að Reykjanesbær varð til við sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna árið 1994 réð Sjálfstæðisflokkurinn lengi framan af lögum og lofum í bæjarstjórn. Hann var í meirihluta í bæjarstjórn með Framsóknarflokknum árin 1994-2002 og síðan einn í meirihluta frá 2002-2014 og oddvitar hans gegndu embætti bæjarstjóra. Flokkurinn hefur hins vegar verið í minnihluta frá 2014 þrátt fyrir að vera stærsti flokkurinn í bæjarstjórn.