

Ísframleiðandinn Kjörís segir að tímahrak hafi orsakað það að þurft hafi að nota gervigreind við hönnun umbúða jólaíss með súkkulaði fyrir þessi jól. Málið hefur verið mikið í umræðunni og sitt sýnist hverjum.
Málið hefur verið töluvert til umræðu að undanförnu. Það er eftir að neytendur tóku eftir að umbúðirnar á ísnum Jólaískúla væru eitthvað skrýtnar og gervigreindarlegar.
Í umræðum um málið á samfélagsmiðlinum Reddit hefur til að mynda verið haldið fram að græðgi hafi ráðið för, það er til að sleppa við kostnað. Einnig að gervigreindin steli hugverkum mennskra listamanna til að framkalla myndir.
„Ég tel þetta ráðast fyrst og fremst af samfélagslegri andúð á tilhugsuninni að borga listafólki fyrir vinnu sína. Þetta einskorðast ekki við nokkur fyrirtæki, og sést glögglega í árlegri umræðu um starfslaun listamanna,“ sagði til að mynda einn notandi. Sögðust nokkrir ætla að sniðganga fyrirtæki sem notuðu gervigreindarlist.
Í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni svaraði Elías Þór Þorvarðarson, sölu- og markaðsstjóri Kjörís fyrir myndina. Hann sagði Kjörís ekki hafa verið í felum með þetta væri unnið með aðstoð gervigreindar en listamenn hefðu haft aðkomu að henni. Tímahrak hefði þó orsakað að myndin hafi verið unnin með aðstoð gervigreindar.
„Við þurftum að drífa þetta í gegn, einn, tveir og þrír, af því að okkur fannst þurfa að koma einn súkkulaði jólaís fyrir jólin. Við höfðum ekki þann tíma sem við þurfum venjulega til að hanna svona umbúðir. Við erum að vinna með flottum teiknurum sem sögðu að eina leiðin til að klára þetta á þeim hraða sem þið gerið kröfur um er að nota gervigreindina,“ sagði Elías í þættinum í morgun.
Sagði Elías að Kjörís veigraði sér ekki undan þessari umræðu heldur fagnaði henni. Gervigreindin væri orðinn stór þáttur af öllu í dag.
„Við fögnum þessari umræðu. Okkur þykir mjög vænt um að fá að taka þátt í að móta framtíðina. Staðan er sú að gervigreindin er komin alls staðar. Konan mín kvartar undan því að ég tali meira við Candy mína heldur en hana,“ sagði Elías en það er viðurnefnið á gervigreindinni sem hann notar.
Það sama eigi við um listafólk sem sé í auknum mæli farið að nota gervigreind.
„Það er eins með listamenn. Þeir eru farnir að nota þetta gríðarlega mikið og við erum að vinna ofboðslega mikið með listamönnum. Það er sennilega ekkert fyrirtæki á landinu sem vinnur jafn mikið með listamönnum og við,“ sagði Elías og nefndi til að mynda samvinnu fyrirtækisins með
Elías segir gervigreindina aðeins einn pensilinn enn í höndum listamannsins.
„Ég var meðvitaður um að þessi umræða gæti komið upp. Við vorum ekkert að reyna að fela það að hér væri gervigreindin vel nýtt,“ sagði hann.