

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins, formaður velferðarnefndar og sálfræðingur segir að líklega sé fátt erfiðara foreldrum en þegar barn þeirra ánetjast vímuefnum. Heimilt sé fyrir foreldra að láta frelsissvipta börn ef þau eru í neyð og talin hættuleg sjálfum sér eða öðrum.
„Það er sennilega fátt erfiðara foreldrum og fjölskyldunni allri en að horfa upp á barn eða ungling ánetjast áfengi og eða öðrum vímuefnum. Það reynist foreldrum og forráðafólki oftast mjög erfitt að rökræða við barn þegar fíknin hefur tekið völdin.
Barn í neyslu er í lífshættu ef ekki næst að grípa inn í og stöðva neysluna og líferni sem henni fylgir. Barn í neyslu þarf hjálp til að hætta neyslunni. Það er ekki einungis neyslan sjálf sem stefnir lífi barna og ungmenna í voða. Barn sem er undir áhrifum fíkniefna er í meiri áhættu fyrir alls kyns slysum. Það er einnig í mikilli hættu á að verða fyrir ofbeldi, að vera misnotað af fullorðnu fólki með annarlegar hvatir og að vera nýtt til afbrota.“
Í grein sinni á Vísi bendir Kolbrún á að í barnaverndarlögum séu heimildir til að úrskurða börn í vistun án þeirra samþykkis, til dæmis í 14 daga í neyðarvistun á Stuðlum og í úrræði Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) með úrskurði. Foreldrar barna sem glíma við fíknivanda geti látið vista barn sitt í meðferð gegn vilja þess ef þau eru talin í neyð og hættuleg sjálfum sér eða öðrum.
„Að öðru leyti er það ákvörðun foreldra og forráðamanna hvort barn er vistað til langs tíma í lokuðu sólarhringsúrræði, hvort sem barnið samþykkir það eða ekki. Eftir að barn hefur náð 15 ára aldri verður það sjálft aðili að sínum málum. Það þýðir að barnavernd þarf að úrskurða gegn barninu sjálfu ef það samþykkir ekki að þiggja meðferð. Hægt er að úrskurða 15-18 ára barn í meðferð bæði gegn vilja barns og foreldra. Flest börn í meðferð dvelja þó á meðferðarstofnun á grundvelli samþykkis.“
Kolbrún segir ríkisstjórnina hafa sett málefni barna sem leiðst hafa út í fíkn og barna sem glíma við fjölþættan vanda, þar á meðal fíkn, í forgang. Unnið hafi verið hörðum höndum að því að byggja upp úrræði, endurbæta Stuðla eftir hræðilegan bruna þar sem ungur drengur lést og setja á laggirnar nýtt úrræði. „Úrræðin þurfa að vera fjölbreytt til að mæta ólíkum þörfum barna. Börnin eru þess utan á mismunandi stað í neysluferli sínu. Sum hafa nýlega hafið neyslu en önnur kunna að vera við dauðans dyr vegna neyslu sinnar.“
Segir Kolbrún reynsluna sýna að nauðsynlegt er að í boði sé viðeigandi langtíma meðferð í lokuðu úrræði fyrir börn sem eru langt leidd vegna áfengis- og annarrar vímuefnaneyslu. Slík meðferð er líklegri til árangurs en styttri inngrip. Eftirfylgni þurfi síðan að vera í boði og lykilatriði að vinna með foreldrum í meðferð barna þeirra. Börnin þurfa stuðning foreldra sinna og foreldrar þurfa fræðslu og stuðning fagfólks.
Kolbrún rekur næst hvaða úrræði eru í boði, en foreldrar barna sem glíma við fíknivanda hafa sagt þau fá hérlendis. Og eins og greint hefur verið frá í fréttum undanfarið hafa foreldrar brugðið á það ráð að senda börn sín í meðferð til Suður-Afríku. Segir Kolbrún að laus pláss séu í MST, fjölkerfameðferð sem veitt er á heimili barns og einnig séu laus pláss annars staðar og/eða enginn biðlisti. Í janúar opnar meðferðarheimili í Gunnarsholti þar sem hægt verður að sinna sex drengjum á hverjum tíma.