

Árlega veitir Þroskahjálp viðurkenninguna Múrbrjótinn þeim sem hafa brotið niður múra fyrir fatlað fólk í íslensku samfélagi, eflt mannréttindi þess og skapað fleiri tækifæri. Viðurkenningin er veitt á alþjóðadegi fatlaðs fólks, 3. desember.
Árið 2025 eru veittir þrír Múrbrjótar.
Fjórða vaktin, hlaðvarp (Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir)hlýtur Múrbrjótinn 2025 fyrir að varpa ljósi á líf, reynslu og réttindi fatlaðs fólk og fjölskyldna þess. Þessi nýji vettvangur réttindabaráttunnar brýtur niður múra og opnar almenningi innsýn í málaflokkinn og styrkir umræðuna um mannréttindi, aðgengi og jafnrétti.
Jóhanna Brynja Ólafsdóttir hlýtur Múrbrjótinn 2025 fyrir mikilvæga baráttu sína fyrir því að Háskóli Íslands taki fatlaða nemendur inn í diplómanámið á hverju ári. Með elju, hugrekki og óþrjótandi réttlætiskennd hefur Jóhanna Brynja vakið athygli á því hversu miklu máli það skiptir að opna dyr háskólanna upp á gátt fyrir fatlað fólk.
Hekla Björk Hólmarsdóttir hlýtur Múrbrjótinn 2025 fyrir að hafa, fyrst einstaklinga með þroskahömlun, tekið við stöðu aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla Íslands eftir að hún lauk sjálf diplómanáminu við sama skóla. Hekla er fyrirmynd og brautryðjandi sem hefur nú opnað leið fyrir fatlað fólk inn í háskólasamfélagið.