fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Vandræðagemsar handteknir á hótelum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 30. nóvember 2025 07:42

Miðborg Reykjavíkur. Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkuð var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt eins og endranær um helgar.

Aðila í annarlegu ástandi vísað út af veitingastað í hverfi 101.

Í þessu sama hluta Reykjavíkur var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem neitaði að yfirgefa hótel, maðurinn fluttur á lögreglustöð þar sem rætt var við hann og honum gerð grein fyrir því að hann væri ekki velkominn þarna. Hann lofaði að finna sér aðra gistingu og í framhaldinu gekk hann sína leið.

Annar aðili sem var í annarlegu ástandi sökum ölvunar var handtekinn og vistaður í fangaklefa en hann hafði verið  til vandræða á hóteli í hverfi 101.

Aðili var síðan handtekinn í hverfi 101 vegna líkamsárásar og vistaður í fangaklefa.

Óskað eftir var eftir aðstoð lögreglu á bar í hverfi 108 þar sem aðilar voru til vandræða, fólkinu var vísað á brott.

Aðili var handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir að hafa hent múrstein í gegnum framrúðu á bifreið í hverfi 105.

Í Garðabæ var óskað eftir aðstoð í strætó þar sem farþegi var ölvaður og komst ekki heim til sín hjálparlaust, honum var ekið til síns heima.

Aðili var handtekinn í miðbæ Kópavogs og vistaður í fangaklefa vegna líkamsárásar.

Óskað var eftir aðstoð í verslun í Breiðholti vegna þjófnaðar, málið var afgreitt með vettvangsskýrslu.

Loks var bifreið ekið á ljósastaur í Grafarholti og Úlfarsárdal, ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“
Fréttir
Í gær

Sigurður Ingólfsson er látinn

Sigurður Ingólfsson er látinn
Fréttir
Í gær

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“