

Í dag hefst hin árlega alþjóðlega herferð Amnesty International Þitt nafn bjargar lífi hefst í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsdeild samtakanna.
Í tilkynningunni segir að við lifum á tímum þar sem frelsi okkar fari þverrandi, valdboðsstefna og einræðistilburðir fari vaxandi:
„Við verðum vitni að hópmorðinu á Gaza, loftslagsváin vomir yfir okkur og borgaraleg réttindi hafa hnignað. Það er auðvelt að láta hugfallast á þessum erfiðu tímum og finnast sem við fáum litlu um breytt en þó að við getum ekki breytt öllu getum við öll breytt einhverju.“
Segir enn fremur í tilkynningunni að ljósið í myrkrinu sé árleg, alþjóðleg herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi, sem ýtt verði úr vör í dag. Herferðin hafi ítrekað sannað:
„Að í krafti samstöðunnar get við haldið ljósinu og voninni lifandi. Á þessum örlagaríka tímapunkti í sögunni verðum við að standa með mannréttindum og veita sameiginlega andpyrnu. Að öðrum kosti er hætta á að valdboðsstjórnir berji enn frekar á frelsi okkar og réttindum.“
Segir í tilkynningunni að Þitt nafn bjargar lífi skori á milljónir einstaklinga að sameinast um að breyta lífi þeirra sem sæti mannréttindabrotum. Herferðin sýni að jafnvel þegar staða heimsmála virðist yfirþyrmandi þá geti sérhver manneskja haft mikil áhrif með lítilli fyrirhöfn. Hægt sé að skrifa undir bréf til stjórnvalda sem brjóti mannréttindi, birta færslu á samfélagsmiðlum eða skrifa stuðningskveðju til þolenda mannréttindabrota og aðstandenda þeirra:
„Með þinni hjálp getum við breytt heiminum og bjargað mannslífi.“
Í tilkynningunni segir um árangurinn af herferðinni:
Síðan herferðin hófst árið 2001 hafa milljónir einstaklinga breytt lífi annarra einstaklinga sem sætt hafa grófum mannréttindabrotum. Gripið hefur verið til rúmlega 50 milljóna aðgerða frá þeim tíma og jákvæðar breytingar hafa orðið í málum rúmlega 100 einstaklinga.
Á hverju ári fær Amnesty International send þakklætisorð frá þolendum mannréttindabrota úr herferðinni þar sem þeir tjá hversu mikils virði stuðningur frá fólki hvaðanæva að hefur verið þeim og jafnvel leitt til þess að þeir hafi fengið frelsi sitt á ný. Það er afar einfalt að taka þátt og sýna stuðning sinn í verki. Það eina sem þarf að gera er að kynna sér mál þeirra einstaklinga og hópa sem barist er fyrir í ár og skrifa undir málin hér.
Um árangur herferðinnar á fyrri árum segir í tilkynnningunni:
„Eitt af málum Þitt nafn bjargar lífi árið 2023 var mál Rocky Myers sem er svartur maður með þroskahömlun. Rocky hafði þá setið á dauðadeild í Alabama í þrjá áratugi. Hann var sakfelldur fyrir morð þrátt fyrir að vitnisburður gegn honum hafi einkennst af ósamræmi. Dómari dæmdi hann til dauða sem var gegn vilja kviðdómsins. Fram til ársins 2017 mátti dómari í Alabama kveða upp dauðadóma gegn vilja kviðdóms, þar til lög tóku gildi sem bannaði slíkt. Lögin voru þó ekki afturvirk og náðu því ekki yfir dauðadóm Rocky.“
„Hundruð þúsundir einstaklinga um heim allan kröfðust þess að ríkisstjóri Alabama náðaði Rocky og í febrúar 2025 varð það loks að veruleika.“
„Rocky á ekki lengur á hættu á að vera tekinn af lífi en barátta Rockys fyrir réttlæti er þó ekki lokið þar sem hann leitar réttlætis vegna brots á málsmeðferð. „Herferðin vakti ekki aðeins athygli á máli hans heldur heiðraði einnig Rocky sem manneskju, föður og afa. Ég veit að þessi mikli stuðningur skipti Rocky öllu máli og sú vitneskja að margt fólk taldi sig knúið til aðgerða er sannarlega hvetjandi,“ segir Miriam Bankston, úr lögfræðiteymi Rocky í Bandaríkjunum.
Um annað mál segir í tilkynningunni:
„Samtakamátturinn leiddi sömuleiðis til sigurs í máli Dorgelesse Nguessan frá Kamerún.“
„Í september 2020 tók hún fyrst þátt í mótmælum í Kamerún vegna áhyggja af ástandi efnahagsmála í heimalandi sínu. Í friðsamlegum mótmælum var Dorgelesse handtekin. Hún var ákærð fyrir „uppreisn, samkomu, fundi og opinber mótmæli“ og dæmd í fimm ára fangelsi.“
„Mál hennar var hluti af Þitt nafn bjargar lífi árið 2022, þar sem þúsundir kröfðust lausnar hennar. Baráttan hélt áfram þar til Dorgelesse var látin laus og sameinaðist fjölskyldu sinni í byrjun árs 2025.“
„Dorgelesse þakkaði Amnesty International með eftirfarandi orðum;
„Þið höfðuð samband við okkur á þeim tímapunkti þegar við þurftum mest á því að halda. Sonur minn var veikur, móðir mín var veik. Fangelsisvist mín hafði haft svo mikil áhrif á hana að hún varð enn veikburðari. Þessi herferð gaf henni styrk. Það var okkur öllum hvatning. Ég veit ekki hvernig ég get þakkað Amnesty nóg.““
Um mál frá Tyrklandi segir í tilkynningunni:
„Şebnem Korur Fincancı frá Tyrklandi er réttarlæknir, baráttukona fyrir mannréttindum og háskólakennari sem hefur helgað líf sitt stöðvun pyndinga og verndun mannréttinda. Til að þagga niður í henni sætti hún tilhæfulasum glæparannsóknum af hálfu tyrkneskra yfirvalda. Árið 2023 var hún sakfelld fyrir „að búa til áróður fyrir hryðjuverkasamtök“ í kjölfar þess að hún kallaði eftir rannsókn á ásökunum um að tyrkneski herinn notaði efnavopn í Írak. Şebnem á yfir höfði sér rúmlega tveggja ára fangelsi verði dómnum ekki hnekkt. Mál hennar tekið upp í Þitt nafn bjargar lífi árið 2024.“
„Şebnem lét eftirfarandi orð falla: „Upphaflega voru það hundruð, nú þúsundir, fallegra korta og bréfa, sum handgerð, sem styrkja málstað minn og ylja hjarta mitt.““
Málin í herferðinni eru alls átta:
„Nú þurfa fleiri á aðkallandi aðstoð að halda. Í ár beinist herferðin að átta málum einstaklinga og hópa víða um heim. Í Ekvador berjast ungar baráttustúlkur fyrir verndun Amazon-skógarins, í Noregi berst samísk frumbyggjakona fyrir samfélag sitt til verndar menningu þess og lífsviðurværi sem hreindýrahirðingjar, í Mjanmar hlaut blaðaljósmyndari 20 ára fangelsisdóm fyrir fréttaöflun um eftirköst fellibyls í óþökk stjórnvalda, í Suður-Afríku krefjast foreldrar réttlætis fyrir þriggja ára son sinn sem lést eftir að hann féll ofan í kamar á leikskóla sínum og í Túnis situr kona í fangelsi fyrir að tjá sig um málefni á borð við kynþáttafordóma og ómannúðlega meðferð í fangelsum.“

Um málið frá Suður Afríku segir:
„Unecebo Mboteni, þriggja ára drengur, féll ofan í kamar á leikskóla sínum þann 18. apríl 2024 í austurhluta Cape-héraðs. Degi síðar lét hann lífið. Ári síðar hefur fjölskylda hans ekki fengið svör við því hvers vegna þessi harmleikur átti sér stað. Málið er enn í rannsókn samkvæmt fjölskyldu hans en enginn hefur verið dreginn til ábyrgðar.“

Nánar má kynna sér málið og skrifa undir hér.
Um málið frá Túnis segir:
„Sonia Dahmani er lögfræðingur sem hefur helgað líf sitt baráttunni fyrir mannréttindum. Öryggissveitir í Túnis handtóku hana í maí 2024 fyrir að tjá sig um málefni á borð við kynþáttafordóma. Sonia var sakfelld og dæmd til fangavistar á grundvelli tilhæfulausrar ákæru um að „dreifa fölskum fréttum“. Hún sætir frekari rannsóknum sem eru af pólitískum meiði. Hún á yfir höfði sér allt að 20 ára fangavist og henni er haldið fanginni við ómannúðlegar aðstæður.“

Nánar má kynna sér málið og krefjast lausnar Soniu hér.
Um málefni stúlknanna í Ekvador segir:
„Baráttustúlkur Amazon-skógarins berjast, ásamt samtökunum UDAPT og samvinnuhópi sem kallar sig Eliminen los Mecheros, Enciendan la Vida (Stöðvið gasbruna, tendrið líf), gegn eyðileggingu af völdum gasbruna. Þessi hópur ungra kvenna frá Ekvador sætir ofbeldisfullum hótunum vegna baráttu sinnar gegn loftslagsvánni. Árið 2021 úrskurðaði dómstóll í Ekvador að gasbruni bryti gegn mannréttindum og réttinum til heilnæms umhverfis og var stjórnvöldum fyrirskipað að stöðva notkun hans. Þrátt fyrir það logar hann víða enn.“

Hægt er að krefjast þess að Ekvador stöðvi gasbruna og verndi baráttustúlkurnar hér.
Segir að lokum í tilkynningu Amnesty:
„Nú hefur þú tækifæri til að breyta lífi þessara einstaklinga og annarra í herferðinni í ár, rétt eins og stuðningsfólk Amnesty International gerði í málum Dorgelesse, Rocky, og fleiri einstaklinga.“
„Með þinni undirskrift getum við skapað þrýsting á stjórnvöld sem brjóta mannréttindi, snúið ranglæti í réttlæti og haldið voninni á lofti.“
„Ekki láta þitt eftir liggja. Hver undirskrift skiptir máli.“