fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Segja Ísraela hafa misþyrmt og niðurlægt Gretu Thunberg

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 5. október 2025 13:04

Aðgerðarsinninn Greta Thunberg þegar Frelsisflotinn lagði af stað til Gaza.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþjóðlegir aðgerðarsinnar, sem vísað var frá Ísrael eftir að hafa tekið þátt í siglingu alþjóðlega Frelsisflotans til Gaza, fullyrða að meðlimir ísraelskra öryggissveita hafa beitt aðgerðasinnann Grétu Thunberg hörku haldi og niðurlægt hana. Ísraelsk yfirvöld hafna hins vegar ásökununum alfarið og kalla þær „algjöra lygi“.

Samkvæmt tyrkneskum embættismönnum lenti hópur 137 brottvísaðra aðgerðarsinna í Istanbúl á laugardag, þar á meðal 36 Tyrkir en einnig þátttakendur frá Bandaríkjunum, Ítalíu, Malasíu, Kúveit, Sviss, Túnis, Líbíu og Jórdaníu.

Nokkrir þeirra lýstu meintum ofbeldisverkum gegn Thunberg. Tyrkneski blaðamaðurinn Ersin Celik sagði í viðtali að hann hafi séð ísraelska hermenn „pynta“ hana, draga hana eftir gólfinu og neyða hana til að kyssa ísraelska fánann. Svipaðar frásagnir komu frá malasísku aðgerðakonunni Hazwani Helmi og bandaríska þátttakandanum Windfield Beaver, sem sögðu Thunberg hafa orðið fyrir ofbeldi

„Þetta var hörmung. Þeir komu fram við okkur eins og dýr,“ sagði Helmi og bætti við að föngum hafi verið synjað um mat, hreint vatn og lyf.

Ítalski blaðamaðurinn Lorenzo Agostino lýsti því að Thunberg, sem er 22 ára gömul, hafi verið „niðurlægð, vafin inn í ísraelskan fána og sýnd eins og verðlaunagripur“.

Fleiri sögðu frá alvarlegri meðferð. Tyrkneska sjónvarpskonan Ikbal Gurpinar sagði föngum hafa verið haldið svöngum í þrjá daga og neydd til að drekka úr salerni í miklum hita. „Þeir komu fram við okkur eins og hunda,“ sagði hún.

Mannréttindasamtökin Adalah, sem veittu föngum lögfræðiaðstoð, sögðu marga hafa þurft að knékrjúpa með bundnar hendur í klukkustundir og ekki fengið að tala við lögfræðinga. Ísraelska utanríkisráðuneytið kveður þetta algera uppspuna: „Allir fengu mat, vatn, aðgang að salerni og full réttindi samkvæmt lögum,“ sagði talsmaður ráðuneytisins við Reuters.

Ísrael hefur sætt vaxandi gagnrýni fyrir árásina á Frelsinsflotann, þar sem sjóher landsins stöðvaði á fjórða tug báta með hjálpargögn á leið til Gaza og handtók yfir 450 manns. Flotinn alþjóðlegi lagði af stað í lok ágúst til Gazastrandarinnar og var markmiðið að rjúfa umsátur Ísraela og koma hjálpargögnum til Palestínumanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn