fbpx
Föstudagur 03.október 2025
Fréttir

Sigurbjörg segir Ásdísi bæjarstjóra ekki hlusta á foreldra – „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 3. október 2025 12:30

Sigurbjörg Erla gagnrýnir Ásdísi bæjarstjóra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, fulltrúi Pírata í bæjarstjórn Kópavogs, segir gagnrýni Ásdísar Kristjánsdóttur bæjarstjóra á rannsókn á „Kópavogsmódelinu“ svokallaða í leikskólamálum ekki halda vatni. Bæjarstjórinn hlusti ekki á foreldra í bænum.

Ný rannsókn Vörðu á leikskólamálum í Kópavogi sýna að breytingin sem gerð var árið 2023 henti fjölskyldum mjög illa. Það er að gera sex tíma gjaldfrjálsa en hækka verðið fyrir fulla dagvistun mjög mikið. Foreldrar lýsa óánægju með kerfið og segja það hannað út frá hagsmunum sveitarfélagsins en ekki þeirra.

Sagði úrtakið of lítið

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri sagðist gefa lítið fyrir rannsóknina. Úrtakið væri of lítið og að Varða væri hluti af BSRB sem væri á móti Kópavogsmódelinu.

„Stóra málið er ekki úrtaksstærð heldur að bæjarstjóri hlustar ekki á foreldra,“ segir Sigurbjörg Erla. „Foreldrar í Kópavogi hafa ítrekað lýst tímapressu, auknu álagi og samviskubiti eftir innleiðingu Kópavogsmódelsins, en í stað þess að taka frásagnir þeirra alvarlega segir bæjarstjóri að þetta sé „allt of lítið úrtak“.

Sjá einnig:

Mikil óánægja meðal foreldra með Kópavogsmódelið – Saka bæjaryfirvöld um að fegra stöðuna

Mikið hefur verið fjallað um Kópavogsmódelið í fjölmiðlum á undanförnum árum og hafa margir foreldrar gagnrýnt það harðlega. Er módelið sagt aðeins henta efnuðum foreldrum sem þurfi ekki að vinna átta tíma vinnudag. Einnig að módelið skekki myndina gagnvart konum.

Hentar ekki fjölskyldulífi

Sigurbjörg Erla bendir á að rannsókn Vörðu sé unnin af sérfræðingum og sé eiginlega og aðferðafræðilega vönduð. 20 slembivalin viðtöl séu eðlilegt umfang þegar markmiðið sé að skilja hvernig kerfið bitnar á fjölskyldum.

Sjá einnig:

Hart tekist á um Kópavogsleiðina eftir að móðir tveggja barna greindi frá svimandi kostnaði – „Vonlaus leið, þessi Kópavogsleið“

„Fullyrðingu bæjarstjóra um að ánægja sé að aukast þarf að styðja með gögnum. Þangað til stendur eftir það sem foreldrar segja sjálfir: kerfið er stíft, skapar stöðuga pressu og hentar illa venjulegu fjölskyldulífi með útivinnandi foreldra. Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing og íbúar Kópavogs eiga skilið að bæjarstjóri hlusti á þá,“ segir hún að lokum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Óargadýr í eigu Fast & Furious stjörnu halda hverfi í gíslingu og drepa aðra hunda

Óargadýr í eigu Fast & Furious stjörnu halda hverfi í gíslingu og drepa aðra hunda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Afbókanir farnar að berast ferðaþjónustuaðilum vegna falls Play – Misjafnar skoðanir á æskilegum viðbrögðum

Afbókanir farnar að berast ferðaþjónustuaðilum vegna falls Play – Misjafnar skoðanir á æskilegum viðbrögðum