fbpx
Sunnudagur 20.júlí 2025
Fréttir

„Alltof oft eyðum við of miklum tíma með óþægilegu fólki sem mergsýgur taugakerfið okkar“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 20. júlí 2025 17:30

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur betur þekkt sem Ragga nagli, fjallar um mörk okkar í nýjasta pistli sínum á Facebook. Pistlar Röggu sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda.

Mörk eru fjarlægðin þar sem ég get elskað þig og mig samtímis.

Mörk eru leiðbeiningar og væntingar um framkomu og hegðun annarra.

Hvað við þurfum til að upplifa öryggi í sambandinu.

Mörk eru EKKI að breyta öðru fólki.

Mörk eru EKKI skipanir og hótanir.

Mörk eru EKKI þagnarbindindi og fýlustjórnun.

Mörk eru EKKI aggressíf samskipti.

Stundum til að vernda orkuna okkar þurfum við að setja öðrum mörk með að nota raddböndin.

Ragga bendir á þrátt fyrir átta milljarða manna á jörðinni getur ekki ein einasta hræða lesið hugsanir okkar.

En ef við erum með mörk sem eru hriplek eins og gatasigti þá munu aðrir notfæra sér það til hins ítrasta. Alltof oft eigum við erfitt með að standa með sjálfum okkur og tjá tilfinningar og hvað við viljum frá öðrum. Það er oft afleiðing af að hafa verið gaslýst og ekki fengið öruggt rými fyrir að upplifa allt tilfinningarófið. Oftar en ekki þurfum við að setja okkur sjálfum skýr persónuleg mörk þegjandi og hljóðalaust.

Alltof oft eyðum við of miklum tíma með óþægilegu fólki sem mergsýgur taugakerfið okkar og skilur það eftir á yfirsnúningi í kortisólmarineringu.

Því þau eru nú fjölskylda, gamall vinur, eiga enga vini…. eða aðrar réttlætingar fyrir að eyða batteríinu í óþægilegar samverustundir.

Mynd: Ragga nagli.

Ragga segir að oft tökum við skoðanir og gagnrýni annarra sem heilagan sannleik og missum svefn í kvíðakasti yfir áliti einnar manneskju.

Við missum okkur í ágreining um ómerkilegan tittlingaskít og orkan okkar fuðrar upp.

Og eigum ekki snefil aflögu fyrir fólkið sem skiptir raunverulega máli.

Alltof oft setjum við okkar eigin sjálfsrækt í saltpækil til að þjónusta aðra.

Marineruð í manneskjugeðjun segjum JÁ við öllum mögulegum verkefnum.

Þó að við höfum ekki nanósekúndu né orkudreitil aflögu.

Hvert einasta JÁ þýðir NEI fyrir okkur sjálf og okkar nánustu.

Og geðheilsan bíður hnekki.

Við getum sjálf stjórnað hvaða baráttu við veljum, eins og Ragga bendir á.

Við getum ákveðið hvaða skoðanir og gagnrýni annarra við flokkum sem: MÉR ER DRULL.Við getum lækkað væntingar um framkomu annarra sem hafa ítrekað sýnt okkur vanvirðingu. Við getum dregið úr samskiptum við tilfinningalega vanþroskað fólk sem beitir fýlustjórnun og samviskubitsvæðingu. Þú stútfyllist af valdeflingu með hökuna upp og kassann fram þegar þú hættir að reyna að breyta öðrum og einblínir á hið eina sem þú getur stjórnað sem eru þín eigin mörk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sex börn Karls Erons í losti eftir að hafa lesið dánartilkynningu Moggans eftir útför hans – „Við vorum ekkert látin vita“

Sex börn Karls Erons í losti eftir að hafa lesið dánartilkynningu Moggans eftir útför hans – „Við vorum ekkert látin vita“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gosmóða frá eldgosinu nálgast höfuðborgarsvæðið – Getur valdið sleni og höfuðverk

Gosmóða frá eldgosinu nálgast höfuðborgarsvæðið – Getur valdið sleni og höfuðverk
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hneykslismál skekur Tæland: Sögð hafa táldregið munka og kúgað síðan fé út úr þeim

Hneykslismál skekur Tæland: Sögð hafa táldregið munka og kúgað síðan fé út úr þeim
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Trump greindur með bláæðabilun

Trump greindur með bláæðabilun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvennaathvarfið fær 144 milljónir frá Á allra vörum

Kvennaathvarfið fær 144 milljónir frá Á allra vörum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Unglingsdrengur fær bætur eftir hörmulegt bifhjólaslys í Mosfellsbæ þrátt fyrir vítavert gáleysi

Unglingsdrengur fær bætur eftir hörmulegt bifhjólaslys í Mosfellsbæ þrátt fyrir vítavert gáleysi