Bílaframleiðandinn Tesla hefur verið kærður vegna dauða ungrar konu árið 2019. Konan, sem var gangandi vegfarandi, varð fyrir Tesla bíl sem var stilltur á sjálfstýringu.
Fréttastofan Sky greinir frá þessu.
Atvikið átti sér stað í Flórída fylki í Bandaríkjunum árið 2019. Naibel Benavides og kærasti hennar Dillon Angulo voru á næturgöngu að skoða stjörnurnar þegar Tesla bíll á sjálfstýringu kom æðandi og keyrði á þau.
Höggið var mikið og Naibel flaug 22 metra inn í nálægan skóg og lést samstundis. Dillon lifði ákeyrsluna af en slasaðist alvarlega.
Eigandi Tesla bílsins, George McGee, náði samkomulagi við fjölskyldur Naibel og Dillon utan réttar og er því ekki aðili að þessu máli. Lögmenn fjölskyldnanna kærðu bílaframleiðandann og halda því fram að búnaður bílsins, sem var af gerðinni Model S Sedan, hefði átt að vara ökumanninn við og bremsa áður en hann keyrði á fólkið.
Halda þeir því fram að bíllinn hafi keyrt yfir á rauðu ljósi og ekki virt stöðvunarskyldumerki. Hraðinn hafi verið um 113 km/klst.
Tesla heldur því hins vegar fram að ökumaðurinn beri einn ábyrgð á slysinu. Hafi hann beygt sig niður til þess að sækja farsíma sem hann hafi misst á gólf bílsins þegar slysið varð.
„Gögnin í málinu sýna að þetta slys hafði ekkert að gera með tækni sjálfsstýringarbúnaðar Tesla,“ segir í yfirlýsingu bílaframleiðandans. „Frekar, eins og í mörgum hörmulegum slysum síðan farsímar voru fyrst hannaðir, orsakaðist slysið af ökumanni sem var annars hugar.“
Þetta mál er ekki fyrsta málið þar sem Tesla hefur verið kært vegna slysa tengdum sjálfsstýringarbúnaðinum. En hingað til hefur þeim verið vísað frá eða þá að samið hefur verið utan réttar.
Tesla hefur gert endurbætur á sjálfsstýringarbúnaðinum á undanförnum árum en einnig hefur fyrirtækið innkallað um 2,3 milljón bíla vegna ótta um að búnaðurinn væri ekki að láta ökumenn vita nægilega vel af umhverfinu.
Kviðdómendur voru valdir í gær, mánudag, og voru nokkrir þeirra fjarlægðir eftir að hafa viðurkennt að vera ekki hlutlausir gagnvart Tesla vegna eignarhaldsins. Það er vegna Elon Musk, sem hefur stutt Donald Trump og önnur hægriöfgaöfl víða um heim. Musk var ekki viðstaddur í dómsal en hann hefur meðal annars látið hafa eftir sér að Tesla bílar séu öruggari en menn.
„Sönnunargögnin munu sýna að í mörg ár, fyrir og eftir þetta slys, hafi Tesla hunsað viðvaranir,“ sagði lögmaður fjölskyldnanna í réttinum í gær. „Þetta mál snýst um ábyrgð. Tesla tekur enga ábyrgð á göllum í sjálfsstýringarbúnaðinum.“