fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. júní 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað bótakröfu manns á hendur ríkinu. Hafði maðurinn verið handtekinn fyrir akstur undir áhrifum kókaíns. Málið var fellt niður á grundvelli þess að kókaín hafi ekki fundist í mælanlegu magni í blóði mannsins. Síðar lá hins vegar fyrir að önnur merki um kókaínneyslu fundust í blóðsýni mannsins en hann vísaði til þess að þar sem hann ynni við pípulagnir hlyti kókaín að hafa komist inn í líkama hans fyrir tilstuðlan skólps.

Lögregla stöðvaði akstur mannsins á Suðurlandsbraut í júní 2023 þar sem hann ók bifreið á miklum hraða. Samkvæmt skýrslu lögreglu bar maðurinn þess merki að vera undir áhrifum fíkniefna. Hann hafi verið með útvíkkuð sjáöldur, mjög þurr í munni, auk þess sem hann hefði ítrekað skellt saman tönnum. Maðurinn fullyrti að hann neytti ekki fíkniefna en féllst á að gefa munnvatnssýni sem gaf jákvæða svörun á kókaín. Hann var í kjölfarið handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem tekið var blóðsýni úr honum. Var manninum sleppt um klukkutíma eftir handtökuna.

Tíu dögum eftir handtökuna var manninum tilkynnt um að rannsókn málsins hefði verið hætt. Í millitíðinni hafði Rannsóknarstofa í lyfja og eiturefnafræði sent frá sér matsgerð þar sem kom fram að kókaín hefði ekki reynst vera í mælanlegu magni í blóði hans.

Víst kókaín

Í janúar á þessu ári lagði Rannsóknarstofan hins vegar fram viðbótarmatsgerð. Þar kom fram að bensóýlekgónin hafi greinst í blóði mannsins. Það sé umbrotsefni kókaíns sem myndist í líkamanum eftir neyslu kókaíns og greinist lengur en kókaín í blóði. Eina skýring þess að efnið greinist í lífsýnum sé neysla kókaíns og staðfesti þessi niðurstaða því að maðurinn hafi neytt kókaíns.

Áður en viðbótarmatsgerðin var lögð fram hafði maðurinn hins vegar lagt fram bótakröfu á hendur ríkinu sem var hafnað. Í kjölfarið stefndi maðurinn ríkinu og vísaði til ákvæða laga um bótarétt þeirra sem bornir hafa verið sökum en verða svo fyrir því að mál þeirra sé fellt niður. Sagðist hann ekkert hafa gert til að stuðla að aðgerðunum og ætti því rétt til bóta.

Maðurinn sagði handtökuna hafa valdið sér miklum álitshnekki og frelsissviptingin í heild mikilli andlegri vanlíðan, en fyrir liggi að hann hafi verið handtekinn í viðurvist vinar síns sem verið hafi farþegi í bifreiðinni umrætt sinn. Hann hafi verið handtekinn að ósekju, enda hafi blóðprufa í málinu staðfest að hann hafi ekki ekið bifreið undir áhrifum. Vildi maðurinn sömuleiðis meina það hafi valdið honum töluverðum miska að undirgangast umrædda líkamsrannsókn, þ.e. blóðprufu, enda hafi með því verið gengið eins nálægt friðhelgi einkalífs hans og líkama og unnt sé. Það hafi fengið mjög á hann að þurfa að gangast undir slíkt próf, þar sem hann hafi verið stunginn með nál.

Skildi ekki og skólpið

Maðurinn sagðist ekki skilja af hverju munnvatnssýni á vettvangi hefði gefið til kynna kókaínneyslu af hans hálfu. Vildi hann meina að umrætt próf sem lögreglan notaði skilaði rangri jákvæðri niðurstöðu í 5 til 10 prósent tilvika.

Eftir að maðurinn höfðaði málið barst áðurnefnd viðbótarmatsgerð og lögmaður ríkisins lagði hana í kjölfarið fram. Til að bregðast við þessu lagði lögmaður mannsins fram fræðigrein þar sem fram kemur að greina megi kókaínneyslu í samfélagi með því að greina umbrotsefni kókaíns í skólpi. Vildi lögmaðurinn meina að þar sem maðurinn ynni við pípulagnir hefði það umbrotsefni kókaíns sem greinst hefði í blóði hans mögulega komist þangað vegna þess að hann kæmist mikið í tæri við skólp í vinnu sinni. Lögmaðurinn gat ekki svarað því hvernig nákvæmlega kókaínið barst með þessum hætti í blóðrás mannsins en mögulega hafi það verið í gegnum húðina.

Ríkið stóð fast á því að fullt tilefni hefði verið til þeirra aðgerða sem lögreglan beitti manninn. Hann hafi stuðlað sjálfur að þeim með of hröðum akstri. Allt það sem gert hafi verið í málinu væri lögmætt og ekki valdið manninum óþarfa miska eða tjóni umfram það sem óhjákvæmilega hljótist. Þar sem hann hefði stuðlað að aðgerðunum sjálfur ætti maðurinn ekki rétt á bótum

Honum að kenna

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að viðbótarmatsgerðin sýni fram á að maðurinn hafi neytt kókaíns nokkru fyrir aksturinn. Sé sú málsástæða að umbrotsefni kókaíns hafi mögulega borist í líkama mannsins með skólpi afar langsótt og hafi lögmaður mannsins ekki reynt að styðja hana með frekari gögnum eða framburði fyrir dómi. Þar að auki hafi lögreglan haft afskipti af manninum eftir að hann hefði ekið á miklum hraða og lögreglumönnum þótt hann sýna merki um fíkniefnaneyslu.

Telur dómurinn í ljósi alls þess að orsakatengsl hafi verið á milli háttsemi mannsins og þeirra þvingunarráðstafana sem hann var beittur. Hann hafi því sjálfur stuðlað að þeim aðgerðum sem hann byggi bótakröfu sína á og þar af leiðandi beri að sýkna ríkið af kröfunni.

Dóminn í heild er hægt að kynna sér hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eru útlendingar í nánast ómögulegri stöðu á Íslandi? – „Rasismi birtist ekki alltaf í hatursfullum orðum eða ögrandi gjörðum“

Eru útlendingar í nánast ómögulegri stöðu á Íslandi? – „Rasismi birtist ekki alltaf í hatursfullum orðum eða ögrandi gjörðum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Geir Waage ekki sáttur: „Þá er verið að kenna villu­trú og það hef­ur mjög slæm­ar og al­var­leg­ar afleiðing­ar“

Geir Waage ekki sáttur: „Þá er verið að kenna villu­trú og það hef­ur mjög slæm­ar og al­var­leg­ar afleiðing­ar“