fbpx
Miðvikudagur 11.júní 2025
Fréttir

Ástandið rólegra í Los Angeles en deilurnar rétt að byrja

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. júní 2025 17:11

Donald Trump sér ekki ástandið í Los Angeles sömu augum og borgarstjórinn og ríkisstjóri Kaliforníu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástandið hefur róast í Los Angeles eftir að mótmæli vegna aðgerða innflytjendaeftirlitsins (ICE) leiddust út í óeirðir og skemmdarverk. Leiðtogar Kaliforníuríkis og alríkisins, með Donald Trump forseta í fararbroddi, deila hins vegar mjög um hvort þörf hafi verið á því að alríkið beitti þjóðvarðliðum vegna ástandsins og deilurnar um það virðast bera vera rétt að byrja en þó er ekki útilokað að allt fari í bál og brand aftur þar sem fleiri mótmæli eru fyirhuguð.

Nokkrir tugir mótmælenda voru handteknir og gúmmíkúlum og táragasi beitt en einnig var ráðist gegn lögreglumönnum. Embættismenn segja ástandið orðið rólegra en þó séu enn lokanir í gildi.

Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu hefur gagnrýnt mjög ákvörðun Trump að kalla út um 2.000 þjóðvarðliða ríkisins og setja þá undir stjórn alríkisins. Fá fordæmi eru fyrir því að forseti Bandaríkjanna geri slíkt gegn vilja ríkisstjóra viðkomandi ríkis. Newsom hefur sagt að kæra verði lögð fram gegn forsetanum fyrir þetta. Þó hefur aðeis hluti liðsins verið sendur út á götur borgarinnar og aðkoma þeirra er sögð hafa orðið til þess að ástandið róaðist og hópur mótmælenda og óeirðaseggja tvístraðist.

Tom Homan er sérlegur yfirmaður landamæramála hjá Trump. Hann var sakaður um að hafa hótað því að bæði Newsom og Karen Bass borgarstjóri Los Angeles yrðu handtekin. Newsom hvatti hann eindregið til að láta verða af því og sagði að Homan vissi hvar hann væri að finna.

Homan neitar því hins vegar að hafa hótað slíku og segir að aldrei hafi verið rætt að handtaka borgarstjórann og ríkisstjórann. Það væri leyfilegt að mótmæla en ekki að fremja skemmdarverk og ráðast á útsendara ICE enginn væri hafinn yfir lögin og að einstaklingar sem hegðuðu sér á þann hátt ættu handtöku yfir höfði sér.

Ekki nóg?

Newsom hefur aftur á móti verið gagnrýndur fyrir að beita stofnunum Kaliforníuríkis ekki með nægilega öflugum hætti til að ná tökum á ástandinu. Í umfjöllun CNN er því haldið fram að hópar sem tengist ekki beint baráttu gegn innflytjendastefnu Trump hafi nýtt sér ástandið og blandað sér í mannmergðina til þess m.a. að fremja skemmdarverk. Þetta séu t.d. hópar sem sé uppsigað sig við stjórnvöld almennt og þörf sé á að greina ástandið og sametningu mótmælenda betur.

Newsom og Bass eru hins vegar hörð á því að íhlutun Trump hafi hleypt olíu á eldinn en forsetinn og hans fólk eru á öðru máli og segja að þetta hafi verið eini möguleikinn í stöðunni til að koma í veg fyrir allsherjarupplausn og framfylgja lögum og reglu. Sagði Trump fyrir skemmstu á samfélagsmiðlum að Newsom og Bass væru vanhæf, hefðu logið um ástandið og ættu að þakka honum fyrir. Sagði hann í kjölfarið við fréttamenn að ef hann væri Tom Homan myndi hann láta handtaka Newsom.

Newsom segir Trump vera að reyna að búa til krísu til að auka völd sín og Bass segir ástandið hafa náð yfir afmarkað svæði í miðborg Los Angeles og gagnrýnir að borgaryfirvöld hafi ekki verið látin vita af aðgerðum ICE til að handsama ólöglega innflytjendur, sem komu öllum látunum af stað. Jim McDonnell lögreglustjóri í Los Angeles segir ofbeldið sem beitt hafi verið af óreiðaseggjum sé viðbjóðslegt en ljóst sé að verstu brotamennirnir hafi ekki verið sama fólkið og hafi verið að mótmæla aðgerðum ICE.

Framhaldið

Newsom og Bass eru bæði Demókratar og þingmenn flokksins á Bandaríkjaþingi og aðrir flokksfélagar þeirra hafa gagnrýnt aðgerðir Trump í málinu. Miðað við þau orð og yfirvofandi lögsókn Newsom og tal forsetans um að handtaka ríkisstjórans er ljóst að þessar deilur um íhlutun Trump í málið eru rétt að byrja.

Mótmælum í borginni virðist hins vegar ekki lokið en mótmælafundir eru fyrirhugaðir um hádegisbil að staðartíma í dag (klukkan 19 að íslenskum tíma) meðal annars til að mótmæla því að Trump hafi tekið stjórnina yfir og beitt þjóðvarðliði Kaliforníu. Það er því mögulegt að ástandið í borginni muni versna á ný.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Harmleikurinn í Austurríki: Þetta vitum við um byssumanninn

Harmleikurinn í Austurríki: Þetta vitum við um byssumanninn
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Formaður björgunarsveitarinnar í Grindavík ræðir stóra derhúfumálið og framtíð bæjarins

Formaður björgunarsveitarinnar í Grindavík ræðir stóra derhúfumálið og framtíð bæjarins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona hljóðaði ályktun ungra sósíalista gegn formanni sínum – „Stærri fjölmiðlaumfjöllun gæti verið skaðleg flokknum“

Svona hljóðaði ályktun ungra sósíalista gegn formanni sínum – „Stærri fjölmiðlaumfjöllun gæti verið skaðleg flokknum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sagður hafa tæklað fjármálaráðherra Bandaríkjanna í sögulegu rifrildi

Elon Musk sagður hafa tæklað fjármálaráðherra Bandaríkjanna í sögulegu rifrildi