fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 5. júní 2025 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fast­eigna­fé­lagið Ber­gey er nýr eigandi Her­kastal­an­s við Kirkju­stræti 2. Ber­gey keypti eignina  á upp­boði á 865 millj­ón­ir króna. Leigutaki hússins er Old Town Guesthouse.

„Her­kastal­inn er án efa ein fal­leg­asta bygg­ing Reykja­vík­ur og á sér merki­lega sögu,“ seg­ir Magnús Berg Magnús­son stjórn­ar­formaður Ber­geyj­ar í til­kynn­ingu. 

Magnús Berg Magnús­son

Her­kastal­inn var byggður árið 1916 eftir teikningum Einars Erlendssonar arkitekts og er húsið friðað, en slíkt gerist sjálfkrafa þegar hús verða 100 ára.. Árið 1929 var tveim­ur hæðum bætt við. Húsið er nú þriggja hæða auk kjall­ara og ris­hæðar, alls 1405 fermetrar.

Her­kastal­inn var lengst­um gisti­heim­ili Hjálp­ræðis­hers­ins. 

Húsið var síðast í eigu félagsins NQ fast­eign­ir, sem var í eigu Quang Le. Hús­leit var gerð í hús­inu eft­ir að Le var hand­tek­inn, grunaður um man­sal, pen­ingaþvætti og fleira í mars 2024.

Magnús Berg segir í samtali við Morgunblaðið að mik­il tæki­færi fel­ist í hús­inu og staðsetn­ingu þess. „Það á skilið að vera með góðan og skemmti­leg­an rekst­ur.“

Mynd: Bergey.
Mynd: Bergey.

Eignasafn með 13 fasteignum – Þar af nokkrum sögufrægum

Bergey á í dag 13 fasteignir, sex þeirra eru í miðbænum og fimm þeirra steinsnar við hann. 

Viðskiptablaðið fjallaði um félagið í nóvember 2023, sem þá átti átta fasteignir. 

Magnús Berg, fyrrum forstjóri danska hönnunarfyrirtækisins Norr11, Torfi G Yngvason, einn stofnenda og fyrrum forstjóri Arctic Adventures, og Jónas Pétur Ólason fara fyrir félaginu. Þeir eru jafnframt meðal stærstu hluthafa félagsins. Starfsemi félagsins er leiga atvinnuhúsnæðis.

Á meðal eigna félagsins eru elsta hótelbygging Reykjavíkur, Ránargata 4a. „Þetta er eitt elsta hótel Reykjavíkur sem var upphaflega rekið undir merkjum City Hotel. Þessi sögufræga bygging var í slæmu ástandi þegar við keyptum hana. Við réðumst í töluverðar endurbætur og í dag er rekið gríðarlega flott 30 herbergja „boutique“ hótel í húsinu undir merkjum Local 101,“ sagði Magnús við VB.

Ránargata 4a. Mynd: Bergey.

Í maí keypti Bergey Digranesveg 5 í Kópavogi, 2.460 fer­metra skrif­stofu­hús­næði. Húsið, sem var byggt árið 1974, hef­ur hýst marg­vís­leg­ar op­in­ber­ar og einka­rekn­ar stofn­an­ir, þar á meðal Reikni­stofu Bank­anna, Útvegs­banka Íslands og Grein­ing­ar- og ráðgjaf­ar­stöð rík­is­ins. Bygg­ing­in er hönnuð af Gísla Hall­dórs­syni og Teikni­stof­unni Ármúla 6, sem hönnuðu margar þekktar opinberar bygg­ing­ar. i. Meðal annarra verka Gísla eru Toll­húsið í Reykja­vík, Laug­ar­dals­höll­in og Hót­el Loft­leiðir. Í dag eru þar SÍM og Hljóðbókasafnið.

Digranesvegur 5 Kópavogi. Mynd: Bergey.

Í apríl greiddi Bergey 700 milljónir fyrir Snorrabraut 37 í Reykjavík, sem best er þekkt sem Austurbær eða Austurbæjarbíó. Austurbæjarbíó sögufrægasta menningarbygging Reykjavíkur, vígt sem kvikmyndahús árið 1947. Húsið var hannað af Herði Bjarnasyni, Gunnlaugi Pálssyni og Ágústi Steingrímssyni, og byggt af athafnamönnum í Reykjavík fyrir tilstuðlan Tónlistarfélagsins í Reykjavík. Byggingin er í íslenskum fúnkísstíl og var sérstaklega hönnuð með tilliti til tónlistarflutnings og hljómburðar. Stórt svið hússins rúmaði allt að 40 manna hljómsveit, og þar tróð meðal annars breska hljómsveitin The Kinks upp árið 1965.

Á efri hæð hússins var skemmtistaðurinn Silfurtunglið rekinn á árunum 1955–1975, en síðar opnaði kvikmyndahúsið Bíóborgin, sem var fyrsta bíó landsins með THX-hljóðkerfi. Pílustaðurinn vinsæli Bullseye hefur verið rekinn í húsinu í nokkur ár.

Á sama tíma og Bergey keypti Austurbæjarbíó tóku Steinþór Helgi Arnsteinsson og Ásgeir Guðmundsson, eigendur staðanna Röntgens og Skreiðar, við rekstri Bullseye og Austurbæjarbíós. Hafa þeir metnaðarfull áform um að blása lífi í húsið með viðburðum, tónleikahaldi og áframhaldandi þróun Bullseye sem pílustaðar. Ágúst Einþórsson, einn af stofnendum Brauð & co og eigandi BakaBaka og Hressó, er með þeim og mun sjá um veitingar í húsinu.

Austurbæjarbíó Snorrabraut 37 Reykjavík. Mynd: Bergey.
Mynd: Bergey.

Í september 2024 keypti Bergey gömlu Mjólkurstöðina við Snorrabraut 54 fyrir 400 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1929 af Mjólkurfélagi Reykjavíkur eftir teikningum Einars Erlendssonar húsameistara. Húsið á sér merkilega sögu en á eftir Mjólkurfélaginu var þar um árabil Osta- og Smjörsalan. Þá hóf fyrsta frjálsa útvarpsstöð landsins, Bylgjan, útsendingar í húsinu og síðar voru þar höfuðstöðvar nýsköpunarfyrirtækisins OZ og Söngskólans í Reykjavík. Húsið sem er 1100 fermetrar er í breytingaferli og þar mun opna 23 herbergja íbúðahótel haustið 2025. 

Snorrabraut 54. Mynd: Bergey.

Í nóvember 2023 greiddi Bergey 335 milljónir fyrir öll atvinnurými, fimm talsins, í nýbyggingu við Borgartún 24. Húsið er 64 íbúða fjölbýlishús á sjö hæðum með atvinnurými á fyrstu hæð. Slippurinn, Sjöstrand og Golf 24 eru komin í húsið.

Borgartún 24 Reykjavík. Mynd: Bergey.

Aðrar fasteignir eru Borgartún 26, þar sem einkarekna heilbrigðisstöðin Intuens er, Borgartún 28, þar sem Advania og Varðan eru, Hverfisgata 40-42, þar sem Reykjavík Sportbar er, Hverfisgata 4 þar sem veitingastaðurinn OTO er, Klapparstígur 28-30, þar sem veitingastaður Monkeys Food and Wine og Kokteilbarinn eru, Laugavegur 17-19, sem hýsir hýsir flaggskipsverslun 66°NORTH, Einhella 4 í Hafnarfirði þar sem Snjallgeymslur eru til húsa,

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Palmer fær nýtt númer
Fréttir
Í gær

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla
Fréttir
Í gær

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“