fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

MAGA-liðar vilja banna klám – Trump er á báðum áttum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 25. maí 2025 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Repúblikanar í Bandaríkjunum hafa lagt fram frumvarp í öldungadeildinni sem gæti gert klámefni ólöglegt á landsvísu. Frumvarpið ber heitið Interstate Obscenity Definition Act (IODA) og leggur til að efni sem sýnir nekt eða kynlíf án „bókmennta-, lista-, stjórnmála- eða vísindagildis“ verði bannað.

Flutningsmaður frumvarpsins er öldungadeildarþingmaðurinn Mike Lee frá Utah, en hann segir nauðsynlegt til að vernda börn og samfélagið allt gegn skaðlegum áhrifum kláms á netinu. Þetta er þriðja tilraun Lee til að fá slíkum lagabreytingum í gegn en þau myndu gera yfirvöldum kleift að refsa þeim sem framleiða eða dreifa slíku efni – sem gæti haft áhrif á samfélagsmiðlarisa eins og X.

Frumvarpið hefur vakið talsverða athygli og umtal, ekki síst vegna álitamála sem snúa að tjáningarfrelsi. Telja margir að bann við öllu klámefni gangi einfaldlega of langt, stangist við stjórnarskrárvarin réttindi og að slíkt bann myndi fæla yngri kjósendur frá Repúblikanaflokkum.

Talsvert veltur hins vegar á afstöðu Donald Trump, Bandaríkjaforseta, til málsins. Hann gaf í skyn stuðning við slíka löggjöf í kosningabaráttu sinni árið 2016 en óljóst þykir hvort að hann muni taka slaginn nú.

Trump hefur nefnilega lengi daðrað við klámiðnaðinn. Hann hefur meðal annars setið fyrir á forsíðumynd Playboy og þá opnaði hann nektardansstað í spilavíti sínu í Atlantic City árið 2013.  Þá er ónefnt hneykslismál hans tengt klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels en Trump var, í stuttu máli, sakfelldur fyrir að greiða henni peninga til þess að þegja um kynlísfund þeirra árið 2006.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli