fbpx
Miðvikudagur 30.apríl 2025
Fréttir

Tvö kaffihús Starbucks opna í miðbæ Reykjavíkur

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 23. apríl 2025 08:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Malasíska félagið Berjaya Food Berhad mun opna tvö kaffihús hér á landi undir merkjum Starbucks og mun það fyrsta opna í maí næstkomandi. Kaffihúsin verða staðsett í miðbæ Reykjavíkur og verður tilkynnt um nákvæma staðsetningu og tímasetningu á opnun þeirra á næstu vikum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Berjaya Food Berhad.

„Rekstur kaffihúsanna er í höndum malasíska fyrirtækisins Berjaya Food Berhad í gegnum systurfélag sitt Berjaya Food International, sem hefur tryggt sér rekstrarleyfi Starbucks í Finnlandi og Danmörku auk Íslands. Hönnun staðanna og þjónusta mun taka mið af því sem viðgengst á Starbucks í Malasíu. Á kaffihúsunum verður lögð áhersla á persónulegt og hlýlegt andrúmsloft með fjölbreytt úrval af kaffidrykkjum og veitingum sem Starbucks er þekkt fyrir um heim allan,“ segir í tilkynningunni.

„Við erum spennt að geta loksins kynnt Starbucks fyrir Íslendingum og vonumst til að kaffihúsin verði áfangastaður fyrir frábært kaffi og góðar samverustundir,“ er haft eftir Dato’ Sydney Quays, forstjóra Berjaya Food Berhad í tilkynningu fyrirtækisins.

„Við hlökkum til að kynna hið einstaka Starbucks andrúmsloft ásamt hlýlegri malasískri gestrisni. Á sama tíma leggjum við áherslu á að styrkja íslenskt samfélag með því að skapa atvinnu og eiga í samstarfi við innlend fyrirtæki með kaupum á vörum og þjónustu,“ bætir hann við.

Fyrirtækið stendur fast við þau gildi og loforð sem viðskiptavinir Starbucks þekkja frá öðrum mörkuðum þar sem markmiðið er að bjóða upp á úrvals kaffi og stuðla að jákvæðum samfélagslegum áhrifum.

„Það gleður okkur að auka viðveru okkar á Norðurlöndum í samstarfi við traustan og langvarandi viðskiptafélaga okkar, Berjaya Food Berhad, og leggja okkar af mörkum til líflegrar kaffimenningar á svæðinu,“ segir Duncan Moir, forstjóri Starbucks í Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku, í tilkynningunni.

„Á grundvelli 26 ára samstarfs við Berjaya Food, hlökkum við til að tengjast enn fleiri viðskiptavinum í gegnum Starbucks kaffi og leggja metnað í að fjárfesta með varanlegum áhrifum í velferð starfsfólksins okkar og samfélagsins alls,“ bætir Moir við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Harma að mötuneyti fyrir eldra fólk í Hafnarfirði hafi verið lokað mánuðum saman – „Þetta eru ekki vönduð vinnubrögð“

Harma að mötuneyti fyrir eldra fólk í Hafnarfirði hafi verið lokað mánuðum saman – „Þetta eru ekki vönduð vinnubrögð“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Frosti fordæmir frétt um hópnauðgun – „Hættuleg sorpblaðamennska“ – Segir að Frettin.is komi óorði á smærri fjölmiðla

Frosti fordæmir frétt um hópnauðgun – „Hættuleg sorpblaðamennska“ – Segir að Frettin.is komi óorði á smærri fjölmiðla