fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Ríkissaksóknari vill rannsókn á meintum mútubrotum Semu Erlu og Maríu Lilju til erlendra ráðamanna

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 16. júlí 2024 08:30

Einar S. Hálfdánarson er maðurinn á bak við kæruna á hendur Maríu Lilju og Semu Erlu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkssaksóknari hefur slegið á putta lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og gert afturreka þá ákvörðun hans að hætta rannsókn á meintum mútugreiðslum forsvarskvenna Solaris-samtakanna, Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp, til erlendra embætismanna til að liðka fyrir flótta palentínskra hælisleitenda frá Gaza-ströndinni hingað til lands.

Morgunblaðið greinir frá þessu.

Það var Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður og faðir Diljá Mistar Einarsdóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins og formanns utanríkismálanefndar Alþingis, sem lagði fram kæruna fyrr á þessu ári. Um var að ræða meðferð á fjármunum sem söfnuðust í fjáröflun undir merkjum Solaris-samtakanna og meðferð á þeim sem Einar taldi meðal annars stangast á við lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Engin rök fyrir niðurfellingu rannsóknar

Lögregla ákvað síðan að fella rannsókn málsins niður því ekki væri grundvöllur fyrir áframhaldandi rannsókn. Þeirri ákvörðun fagnaði meðal annars Helga Vala Helgadóttir, lögmaður tvímenninganna, sem sagði kæruna ekki studda neinum gögnum og eini tilgangurinn væri að hræða baráttufólk fyrir mannréttindum.

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að ríkissaksóknari hafi óskað eftir rökstuðningi fyrir þessari ákvörðun lögreglustjóraembættisins en svar hafi ekki borist. Engin rök séu fyrir því í gögnum málsins að hætta hefði átt rannsókn og því farið fram á að lögreglustjóraembættið taki „málið til viðeig­andi meðferðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin