fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Fullyrða að faðir þingkonu Sjálfstæðisflokksins hafi kært Maríu Lilju og Semu Erlu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 4. apríl 2024 11:06

Einar S. Hálfdánarson er maðurinn á bak við kæruna á hendur Maríu Lilju og Semu Erlu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar S. Hálfdánarson, faðir Diljár Mistar, þingkonu Sjálfstæðisflokksins og formanns utanríkismálanefndar Alþingis, var einstaklingurinn sem lagði fram kærði baráttukonurnar Maríu Lilju Kemp Þrastardóttur og Semu Erlu Serdaroglu til lögreglu vegna fjársöfnunar Solaris-samtakanna. Þetta kemur fram í umfjöllum Samstöðvarinnar en féið sem hefur safnast hefur verið nýtt til björgunar Palestínufólks frá Gaza-svæðinu.

Diljá Mist Einarsdóttir

 

Eins og Morgunblaðið greindi frá í morgun hefur  Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu framsent kæruna til héraðssaksóknara en hin meintu brot geta varðað allt að þriggja ára fangelsi.

„Söfn­un­in er klárt brot á lög­um um op­in­ber­ar fjársafn­an­ir. Til að mynda er ekki unnt að halda ná­kvæmt reikn­ings­hald yfir söfn­un­ar­fé og öll út­gjöld fyr­ir fjár­söfn­un­ina. Né held­ur að end­ur­skoða reikn­ings­haldið af lög­gilt­um end­ur­skoðanda eða þeim er sýslumaður kann að út­nefna til slíks, svo hið aug­ljósa sé nefnt,“ segir í kærunni sem Morgunblaðið hefur undir höndum.

En í henni er því einnig haldið fram að aðgerðir Maríu Lilju og Semu Erlu virðast stangast á við lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Samstöðin greindi svo frá því fyrir stundu að Einar væri maðurinn á bak við ákæruna en miðillinn hefur sömuleiðis komist yfir afrit af kærunni. Hefur miðillinn eftir ónefndum lögmanni að um „pólitískar ofsóknir sé að ræða“.

Einar hefur látið sig málefni Ísraels og Palestínu nokkuð varða. Í nóvember síðastliðnum skrifaði hann harðort opið bréf í Morgunblaðið þar sem hann fordæmdi yfirlýsingu fjórða hundrað starfsmanna Háskóla Íslands til stuðnings Palestínu en yfirskrift greinarinnar var Gyðingaofsóknir endurvaktar – eftir skamman svefn – með yfirlýsingu starfsfólks HÍ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar