fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Baldur útskýrir afstöðu sína til málskotsréttar forsetans

Ritstjórn DV
Mánudaginn 25. mars 2024 15:00

Baldur Þórhallsson Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi hefur brugðist við áskorunum um að hann skýri afstöðu sína til málskotsréttar forseta. Dregið hefur verið í efa að hann myndi sem forseti skjóta lagafrumvörpum í þjóðaratkvæðagreiðslu vegna afstöðu hans til Icesave-málsins á sínum. Meðal þeirra sem hafa viðrað slíkar áhyggjur og í raun krafið Baldur svarar um þetta er lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson.

„Miðað við afstöðu Baldurs til Icesaveskuldauppgjörs og Evrópusambandsins má telja að engin mál sem rata til afgreiðslu á Alþingi frá Evrópusambandinu munu að hans mati teljast svo mikilvæg að þjóðin hafi eitthvað um þau að segja, þó bænaskjal verði sent. Forseti má aldrei óttast handhafa löggjafar- og framkvæmdavalds, eins og reyndin var með Vigdísi Finnbogadóttir, sem ekki treysti sér til að standa með þjóðinni þegar leitað var til hennar með ósk um að vísa lögum um samninginn um hið evrópska efnahagssvæði í þjóðaratkvæði,“ segir Sigurður, og ennfremur:

„Pólitískur forseti stendur væntanlega frammi fyrir þeirri spurningu hvort beita þurfi 26. gr. stjórnarskrárinnar til að forða þjóðinni undan ákvörðunum misvitra stjórnmálamanna, eins og Ólafur Ragnar þurfti þrisvar.“

Svara kalli þjóðarinnar

Af þessu tilefni birtir Baldur yfirlýsingu í stuðningsmannahópi sínum á Facebook. Þar segir hann að forseti verði ávallt að svara kalli þjóðarinnar og megi aldrei vera meðvirkur með ríkisstjórn:

„Ég hef tekið eftir því í umræðunni að fólki leikur forvitni á að vita meira um afstöðu mína og skoðanir á málskotsrétti forseta.

Það var hárrétt af Ólafi Ragnari Grímssyni að vísa ICESAVE málunum til þjóðarinnar á sínum tíma.

Þegar um er að ræða gríðarlega umdeilt mál með svo mikla þjóðarhagsmuni verður forseti að vega og meta hvort að þjóðin eigi að hafi síðasta orðið.

Forseti Íslands má aldrei verða meðvirkur með ríkisstjórn eins og ég fjallaði um í ræðunni á miðvikudag.

Hlutverk fræðimanna er allt annað en forseta en ég hef starfað sem fræðimaður við Háskóla Íslands frá árinu 2000. Fræðimönnum ber meðal annars skylda til að benda á kosti og galla umdeildra mála.

Hlutverk forseta Íslands er að svara kalli þjóðarinnar og tryggja að hún hafi síðasta orðið gangi þingið fram af þjóðinni.

Auk þess á þjóðin að hafa síðasta orðið í stórum og umdeildum málum eins og hugsanlegri aðild að Evrópusambandinu. Það kæmi að mínu mati aldrei til greina að ganga í ESB án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu.

Einnig er mikilvægt að nefna að ef Alþingi einhverra hluta vegna gengur á rétt til málfrelsis, réttindi kvenna eða réttindi hinseginfólks verður forseti að vera tilbúinn að grípa inn í og vísa málum beint til þjóðarinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar