fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Rannveig fór í göngutúr með syni sínum og tók eftir einu – „Eitthvað er öðruvísi en það var hér áður“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. mars 2024 08:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannveig Hafsteinsdóttir, móðir og markaðsstjóri Kilroy, skrifaði athyglisverða grein sem birtist á vef Vísis um helgina. Rannveig er í fæðingarorlofi um þessar mundir og segir frá göngutúr sem hún fór í á dögunum með níu mánaða syni sínum.

„Á vegi mínum mæti ég eldri hjónum. Og svo öðrum. Og svo öðrum. Það væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi að maður mæti eldri hjónum í síðdegisgöngutúr en eitthvað er öðruvísi en það var hér áður.  Hjónin ganga öll á eftir öflugum börnum, líklega flest í kringum þriggja ára aldur, sem hlaupa áfram í pollagöllum brosandi út að eyrum, búin með leikskólann í dag,“ segir Rannveig.

Í grein sinni bendir hún á að í þessum göngutúr sínum sé hún að mæta langömmum og langöfum sem eru að sækja barnabarnabörnin sín úr leikskóla. „Hér er ekki um ömmur og afa að ræða. Lífeyrisaldurinn er 67 ára. Þau eru enn í vinnunni,“ segir Rannveig.

Hálfpartinn hlegið að henni

Hún tekur fram að hún sé búsett í Kópavogi og þar falli leikskólagjöldin niður, að frátöldum fæðisgjöldum, ef barnið er þar sex tíma á dag.

„Skal það vera lengur þarf að borga. Vinnudagurinn er þó að sjálfsögðu enn að staðaldri átta tímar en það er önnur saga og efni í aðra grein. Nú líður að lokum míns fæðingarorlofs. Vinnan bíður mín. Vinna sem ég nýt mín vel í,“ segir Rannveig sem spyr hvað taki þá við.

„Jú, ég sæki um á leikskóla. Ekkert pláss. Það er hálfpartinn hlegið að mér í símann þegar ég hringi til að spyrja hvort einhver séns sé á að barn yfir eins árs, fætt 2023, fái leikskólapláss í haust.  Hvað geri ég þá? Ég sæki um hjá dagmömmum. Umsóknir sem eru sendar þegar barnið hérumbil liggur enn í legi. Ekkert pláss. Hvað geri ég þá? Þetta er spurning sem mig langar að beina til stjórnvalda. Hvað geri ég þá? Hvað á ég að gera?“

„Ekkert meira. Enginn stafur í viðbót“

Hún gerir svo að umtalsefni nýja kjarasamninga sem voru undirritaðir á dögunum en við það tilefni lýstu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra  því yfir að ríkisstjórnin ætli að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Vísar hún í vef stjórnarráðsins þar sem segir:

„Aðilar munu taka höndum saman og vinna með markvissum hætti að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla á samningstímanum með því að tryggja öllum börnum leikskólavist.“ 

„Og þar höfum við þær upplýsingar. Ekkert meira. Enginn stafur í viðbót.  Margir foreldrar ungra barna klóra sér eflaust í hausnum yfir jafn loðinni yfirlýsingu eins og „að brúa bilið“. Bil sem á að brúa á samningstímanum næstu fjögur árin. Ekki er talað um hvernig það skal gert eða nákvæmlega hvenær foreldrar mega búast við slíkri brú. Það eina sem við heyrum er að bilið skal brúað. Lestu úr því það sem þú kýst.“

Rannveig ítrekar spurningar sínar um hvað hún eigi eigi að gera og hvað foreldrar í sömu stöðu eiga að gera.

„Fæðingarorlof mitt er að nálgast sín endalok. Vinnan bíður mín. Ég, eins og svo margar aðrar konur, vil ekki detta af vinnumarkaði. Ég nýt mín í vinnunni minni. Ég tel að það þurfi ekki að nefna að ef mæður fara að hríðfalla af vinnumarkaði, þá muni slík niðurstaða komi sér bæði illa fyrir samfélagið og fyrir jafnréttið sem við leggjum svo ríka áherslu á. En barnið þarf umsjón. Svo ég spyr.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar