Steinunn Árnadóttir, organisti og dýraverndarfrömuður, vekur enn á ný athygli á meintu ófremdarástandi á sveitabýli í Þverárhlíð í Borgarfirði. MAST hefur oft haft afskipti af búskapnum á þessum stað en þar heldur þó dýrahald áfram.
Steinunn lýsir hryllilegum aðbúnaði sauðfjár við sauðburð þessa dagana í Facebook-færslu. Sauðburður sé þar undir beru lofti og án eftirlits nema af hálfu hrafns sem leggist á nýfædd lömb. Annað slagið komi menn á fjórhjólum og hirði upp lambshræ:
„Ef ,,Hryllingssagan frá Höfða“ ber einhvern tímann nafn með rentu þá er það þessa daga.
Nú stendur sauðburður hvað hæst í Hryllingssögunni. Á meðan ég keyrði fram hjá þessum Hryllingsbæ í kalsarigningu og stormi voru nokkrar kindur að bera (eiga lömb). Aðrar börðust um einhverja heydrullu í svaðinu.
Enginn stóð vaktina nema krummi. Hann var við veisluborð. Fyrir framan mig var að hann að murka lífið úr einu lambinu, ber bein blöstu við…
Svo ,,sanngirnis” sé gætt þá sést endrum og sinnum til umráðamanna fara um á fjórhjóli til að hirða afgangana af lambhræjunum og henda niður af barði við veginn. Það er aðstoðin sem kindurnar fá í sauðburðinum!
Já, vinir mínir, þetta er Hryllingssaga…
undir stöðugu, vökulu eftirlit Matvælastofnunarinnar …
Nú verðum við að bregðast við!“