fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
Fréttir

Innleiða stafrænar stefnubirtingar

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 19. apríl 2024 15:53

Dagbjört Hauksdóttir, forstöðumaður löginnheimtu Gjaldskila, og Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Justikal.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Innheimtufyrirtækið Gjaldskil hefur innleitt stafrænar stefnubirtingar frá hugbúnaðarfyrirtækinu Justikal. Justikal setti nýlega á markað nýja lausn sem gerir aðilum kleift að birta stefnur og önnur gögn á öruggan hátt með rafrænum hætti.  Markmið félagsins er að gera alla málsmeðferð fyrir dómstólum hraðari, þægilegri og öruggari, eins og segir í tilkynningu.

“Við viljum gera notendum kleift að vinna með nútímalegri vinnubrögðum en áður og liður í þeirri vegferð er að geta birt stefnur með rafrænum hætti. Markmið okkar og Gjaldskila fara ákaflega vel saman en bæði félögin vilja fara umhverfisvænni og skilvirkari leiðir og okkur hlakkar til að sjá samstarfið blómstra,“ segir Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Justikal.

Gjaldskil býður upp á heildstæðar lausnir við innheimtu krafna allt frá fruminnheimtu til löginnheimtu. Félagið hefur sérhæft sig í rafrænum lausnum í kröfustýringu og innheimtu en stórt skref var tekið á dögunum með innleiðingu á stafrænum stefnubirtingum og öruggum gagnasendingum með Justikal kerfinu.

,,Stefna Gjaldskila Debitum er að vera fremstir innheimtuaðila í rafrænum og skilvirkum lausnum. Félagið var fyrst til að innleiða að fullu rafrænt innheimtuferli og er rafræn birting á greiðsluáskorunum og stefnum í samstarfi við Justikal liður í þeirri vegferð. Með þessu viljum við tryggja að birtingar berist hratt og örugglega til réttra aðila, ásamt því að lækka kostnað greiðenda,” segir eftir Dagbjört Hauksdóttir, forstöðumaður löginnheimtu Gjaldskila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brjálaður og braut rúðu í hamaganginum

Brjálaður og braut rúðu í hamaganginum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Örvæntingarfull leit Úkraínumanna og Rússa að nýjum hermönnum

Örvæntingarfull leit Úkraínumanna og Rússa að nýjum hermönnum