fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Einar sakar Gísla Martein um smættun Hrafns veðurfræðings – „Það fauk dálítið í mig í gærkvöldi“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 9. mars 2024 12:00

Gísli Marteinn hæddist að mistökunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sakar sjónvarpsmanninn Gísla Martein Baldursson um smættun í garð Hrafns Guðmundssonar kollega síns í þættinum Vikunni í gær. Mistökin hafi verið hjá tæknifólki RÚV.

„Það fauk dálítið í mig í gærkvöldi að sjá þegar Gísli Marteinn Baldursson upphafði sjálfan sig á kostnað Hrafns Guðmundssonar,“ segir Einar í færslu á samfélagsmiðlum. En hann er mjög virkur þar og birtir ýmis tíðindi af veðri. Nú beinir hann hins vegar spjótum sínum að sjónvarpsmanninum landsþekkta.

Tæknifólk gleymdi að klippa

Í yfirferð á fréttum vikunnar hjá Gísla Marteini grínaðist hann með útsendingu veðurfrétta fyrr um kvöldið þar sem birtist fyrir mistök upptaka sem sýndi Hrafn lýsa veðri við ranga mynd. Veðurfréttirnar eru ekki teknar upp beint og því er svona bútum alltaf hent út, nema í þetta skiptið hefur það augljóslega gleymst af hálfu tæknifólks.

„Sjónvarpið hafði fyrr um kvöldið gert þau mistök að senda út ranga upptöku af byrjun veðurfregna þar sem Hrafn hafði greinilega raðað kortum sínum í ranga röð,“ segir Einar. „Hann bað í útsendingunni að fá að byrja upp á nýtt. Getur alltaf komið fyrir og í stað þess að RÚV biðji hann kurteislega afsökunar (sem tæknifólkið í útsendingu hefur e.t.v gert?), kemur fjölmiðillinn sama kvöld og dregur stólpagrín að að Hrafni!“

Ekki nefndur á nafn

Einar segir þetta hugsanlega vera full mikla viðkvæmni af sinni hálfu en það hafi stuðað hann að Gísli Marteinn nefndi Hrafn aldrei á nafn. Talaði ítrekað um hann sem „veðurfræðinginn.“

„Í því felst ákveðin smættun á þeim sem um er fjallað,“ segir Einar og bendir á að í næsta glensi var Magnús Tumi Guðmundsson jarðfræðingur nefndur á nafn, en ekki aðeins kallaður „jarðfræðingurinn.“

Öll flissuðu nema Katrín

„Yfir þessu flissuðu gestirnir með Gísla, nema Katrín Jakobsdóttir sem kann sig í aðstæðum sem þessum,“ segir Einar. „Þau Hrafn Guðmundsson, Birta Líf Kristinsdóttir, Theódór Hervarsson, Kristín Hermannsdóttir og Sigurður Jónsson eiga þakkir skyldar að sinna þessu verkefni kvöld eftir kvöld og ár eftir ár, að miða veðurspám til landsmann af alúð. Mæta upp í útvarpshús síðdegis (á versta tíma dagsins). Mæta litlum skilningi þeirra sem eru í óða önn að undirbúa kvöldfréttirnar – eru frekar fyrir en hitt. Dagskrárstjórn er oftast enginn, önnur en sú að halda sig innan tímamarka. Þekki það vel af eigin raun og held ekkert hafi breyst í Efstaleitinu í því tilliti.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna