

66°Norður og Slysavarnafélagið Landsbjörg kynna nú til sögunnar Landsbjargarhúfuna, hannaða af 66°Norður í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg. Markmiðið var að hanna sterka, hlýja og endingargóða húfu með þarfir björgunarsveitarfólks í huga. Húfan er ekki síður hugsuð fyrir almenning til að nota allan ársins hring í útivist. Húfan er úr merino ullarblöndu og því sérstaklega hlý og mjúk.

Innblástur fyrir mynstur Landsbjargarhúfunnar er hálendi Íslands og fjallagarðar landsins. Mynstrið er unnið út frá loftmynd af fjallaskaga á norðanverðu Íslandi. Loftmyndin var tekin árið 1999, sama ár og Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg sameinuðust og til varð Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Húfan fer í sölu í verslunum 66°Norður og vefverslun Slysavarnafélagsins Landsbjargar og 66°Norður í dag og kemur í takmörkuðu upplagi. Verðið á húfunni er 7.900 kr. og rennur ágóðinn af sölu húfunnar til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
