Dagur fer yfir borgarstjóraferilinn í ítarlegu viðtali við Heimildina sem kom út í gær og ræðir meðal annars um framtíðina. Þá er hann spurður út í hvað hafi verið erfiðasta málið sem hann þurfti að glíma við sem borgarstjóri.
Í viðtalinu, sem Þórður Snær Júlíusson tekur, kemur fram að Dagur hafi fyrst svarað með langri þögn en nefnt síðan atvik sem átti sér stað árið 2019.
„Það sem kemur upp í hugann er þegar það var verið að byrja með ferðaþjónustu fatlaðs fólks og bílstjóri gleymdi barni í bílnum. Sem betur fer fór það vel en ég man ekki eftir að hafa liðið jafn illa yfir nokkru einstöku tilviki eins og því að geta ekki treyst því að koma börnum til skila með ferðaþjónustu. Ég hafði vonda tilfinningu lengi á eftir einhvern veginn af því að auðvitað er verið að veita þessa þjónustu á hverjum einasta degi úti um allt. Það var verulega erfitt mál og erfið tilfinning.“
Um var að ræða sex ára dreng með einhverfu sem gleymdist í rúmar þrjár klukkustundir inni í rútu sem flutti nemendur Klettaskóla milli skóla og frístundar.
Í viðtalinu kemur Dagur einnig inn á hvað framtíðin ber í skauti sér og segist hann ekki útiloka að færa sig yfir í landsmálin. Hann virðist ekki hrifinn af því að fara í forsetaframboð. „Nei, ég hef ekki hugleitt forsetaframboð.“
Viðtalið við Dag má nálgast í nýjasta tölublaði Heimildarinnar.