fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Fréttir

Rannsókn lokið á skotárásinni á Blönduósi – Farið yfir hryllilega atburðarásina í fréttatilkynningu lögreglu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 10. febrúar 2023 17:22

Frá Blönduósi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsókn Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi þann 21. ágúst í fyrra er lokið. Kemur þetta fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Rannsóknin hefur leitt í ljós að árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola á Blönduósi og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu, með sjö haglaskot meðferðis. Hann sá að gestir voru á heimilinu, fór út úr húsinu og hélt húsráðandi á eftir honum. Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem enduðu með því að árásarmaðurinn skaut húsráðanda í kvið og særði alvarlega. Árásarmaðurinn fór þá aftur inn í húsið og skaut eiginkonu húsráðanda í höfuð þar sem hún stóð í stofu og lést hún samstundis.

Íbúar Blönduóss slegnir vegna skotárásarinnar – „Ég trúði ekki að svona nokkuð gæti gerst hérna“

Árásarmaðurinn lést eftir átök við son húsráðanda

Rannsókn hefur leitt í ljós að húsráðandi náði tökum á árásarmanninum þar sem hann var að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Kom til mikilla átaka á milli sonarins og árásarmannsins en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasa. Átökin enduðu á þann veg að árásarmaðurinn lét lífið. Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst.

Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna byssumanns inni í húsinu kl. 05.27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögregla var komin á vettvang kl. 05.53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni.

Rannsókn hefur ekki leitt í ljós að eitthvað eitt ákveðið atvik hafi orðið til þess að árásarmaðurinn mætti vopnaður á heimili árásarþola. Hann var einn að verki, allsgáður og hafði átt vinsamleg og virk samskipti við árásarþola fyrir árásina.

Hafði afhent lögregluskotvopn sín og leitað aðstoðar heilbrigðiskerfisins

Tilkynnt var um ferðir árásarmannsins við heimili árásarþola og nágrenni þann 27. júlí 2022 þar sem hann hafði verið með haglabyssu í fórum sínum. Árásarmaðurinn afhenti lögreglu þau skotvopn sem voru skráð á hann og leitaði aðstoðar heilbrigðiskerfis. Rannsókn hefur leitt í ljós að hann var kominn aftur á Blönduós 12. ágúst 2022. Við rannsókn á skotárásinni kom í ljós að árásarmaðurinn hafði tvisvar sinnum verið í garði við hús árásarþola í júlí og tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn.

Rannsóknin á skotvopninu hefur leitt í ljós að haglabyssan var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn og varð gjaldþrota árið 2008. Þrjár haglabyssur voru enn skráðar á fyrirtækið; byssan sem árásarmaðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og þriðja byssan Maveric M-88 haglabyssa sem er ófundin.

Málið var afhent embætti héraðssaksóknara til ákvörðunar í dag.Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra veitir ekki frekari upplýsingar um málið.

Færsla lögreglunnar í heild sinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hryllingurinn við Skyggnisbraut fyrir dóm – Hamed ákærður fyrir manndrápstilraun

Hryllingurinn við Skyggnisbraut fyrir dóm – Hamed ákærður fyrir manndrápstilraun
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vendingar í stóra skákborðsmálinu – Páli í Pólaris gert að greiða hálfa milljón í viðbót

Vendingar í stóra skákborðsmálinu – Páli í Pólaris gert að greiða hálfa milljón í viðbót
Fréttir
Í gær

Leggja til að Ísrael keppi undir hlutlausum fána í Eurovision – Til að komast hjá „niðurlægjandi brottrekstri“

Leggja til að Ísrael keppi undir hlutlausum fána í Eurovision – Til að komast hjá „niðurlægjandi brottrekstri“
Fréttir
Í gær

Gagnagrunnur um þá sem „smætta“ dauða Charlie Kirk skráður á Íslandi – Hvetja til uppsagna

Gagnagrunnur um þá sem „smætta“ dauða Charlie Kirk skráður á Íslandi – Hvetja til uppsagna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Sársaukafull áminning um hversu hættulegir mislingar geta verið“

„Sársaukafull áminning um hversu hættulegir mislingar geta verið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ráðgátan loksins leyst – Hvarf fyrir sex árum með leikjatölvuna í gangi og símann í hleðslu

Ráðgátan loksins leyst – Hvarf fyrir sex árum með leikjatölvuna í gangi og símann í hleðslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vísbendingar um að morðingi Charlie Kirk hafi verið yst til hægri á hinu pólitíska litrófi

Vísbendingar um að morðingi Charlie Kirk hafi verið yst til hægri á hinu pólitíska litrófi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Manndráp í Hlíðarhjalla árið 2005: „Átti að vera skemmtilegt kvöld í góðum vinahóp en endaði hræðilega“

Manndráp í Hlíðarhjalla árið 2005: „Átti að vera skemmtilegt kvöld í góðum vinahóp en endaði hræðilega“