fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Börn ítrekað út á ótraustan ís við Borgarnes – „Þarf ekki að spyrja að leikslokum ef einhver dettur ofan í“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 12. desember 2023 14:00

Ísinn er afar ótraustur en engin skilti eru til aðvörunar. Myndir/Heiður Hörn Hjartardóttir og Josefina Morell

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórhætta hefur skapast dag eftir dag þegar börn hafa gengið út á ótraustan ís á Sandvík, austan við Borgarnes. Á sunnudag voru viðbragðsaðilar kallaðir til þegar óttast var um að einhver hefði fallið ofan í sjóinn.

„Það hafa verið krakkar að labba þarna úti á ísnum dag eftir dag. Það er svo mikil flóð og fjara, þetta er rosalega hættulegt,“ segir listakonan Josefina Morell, sem býr innarlega í Borgarfirðinum. Hún náði að taka ljósmynd af tveimur krökkum á gangi á ísnum.

Skessuhorn greindi frá því að viðbragðsaðilar hefðu verið kallaðir út um klukkan 14:30 á sunnudag vegna hugsanlegs slyss á ísnum, nálægt ferðaþjónustubænum Bjargi. Sem betur fer reyndist svo ekki vera og var útkallið afturkallað eftir nokkrar mínútur.

Engin skilti

„Í fyrradag var björgunarsveitarmaður á göngu með hundinn sinn og rak augu í krakka sem voru komnir langleiðina út að álnum. Það fór betur en á horfðist. Það þarf ekki að spyrja að leikslokum ef einhver dettur ofan í,“ segir Heiður Hörn Hjartardóttir, íbúi á Bjargi.

Josefina náði mynd af tveimur börnum á ísnum í vikunni. Mynd/Josefina Morell

Heiður segir ísinn mjög ótraustan. Ísinn er sérstaklega hættulegur þegar flæðir að en straumurinn er líka oft mjög mikill á þessum stað. Vakir myndast í ísinn sem auðveldlega er hægt er að falla niður um.

„Það er orðinn vani hjá okkur að fylgjast með firðinum. Það er voða algengt að fólk sé að fara út á,“ segir Heiður. Engin skilti eru til að vara fólk við að fara út á ísinn eða annars konar varúðarmerkingar.

Ferðamenn þekkja ekki aðstæður

Oftast eru það börn sem sjást ana út á ísinn en það kemur einnig fyrir að fullorðnir geri það. Heiður telur að oftast nær séu það erlendir ferðamenn sem þekki ekki aðstæðurnar.

„Þeir sjá aðeins fallegt svæði til að labba á en átta sig ekki á hvað er undir,“ segir Heiður. „Við erum kannski búin að missa svolítið tengslin við náttúruna. Við áttum okkur ekki lengur á hættunum.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn