fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Fréttir

Stuðningstorg fyrir Grindvíkinga

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 28. nóvember 2023 10:33

Grindavík.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska fjarheilbrigðisfyrirtækið Kara Connect hefur komið á laggirnar sérstöku Stuðningstorgi sem gerir Grindvíkingum kleift að sækja sérhæfða aðstoð sérfræðinga sér að kostnaðarlausu, eins og kemur fram í tilkynningu.

Í samstarfi við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Rauða Krossinn hefur íslenska fjarheilbrigðisfyrirtækið Kara Connect komið rafrænu Stuðningstorgi á laggirnar sem gerir Grindvíkingum kleift að sækja sérhæfðan stuðning og heilbrigðisþjónustu sér að kostnaðarlausu frá og með deginum í dag.

„Grindvíkingar hafa orðið fyrir gífurlegu áfalli – og vildum við leggja okkar af mörkum til þess að veita þeim þann stuðning sem þau þurfa. Þess vegna ákváðum við að stofna Stuðningstorg þar sem Grindvíkingar geta sótt sér áfallahjálp og sálrænan stuðning á einfaldan og aðgengilegan hátt,“ segir Sigrún Eggertsdóttir, starfsmaður Köru Connect.

Ósérplægnir sérfræðingar leggja hönd á plóg

Verkefnið byggir á ósérplægni hinna ýmsu sálfræðinga, fjölskylduráðgjafa, iðjuþjálfa og annarra sérfræðinga sem allir gefa tíma sinn og vinnu til stuðnings Grindvíkingum – en auk þess gefur Kara Connect alla sína vinnu án endurgjalds. Sérfræðingarnir koma hvaðanæva að, en auk íslenskumælandi sérfræðinga hafa pólsku-, spænsku- og enskumælandi sérfræðingar rétt fram hjálparhönd.

“Torgið býður Grindvíkingum upp á að velja sér sérfræðing til að tala við í einrúmi í fjarviðtali eða á staðnum. Kerfið er einfalt, en öruggt og býður upp á sérfræðinga á ólíkum tungumálum sem er alltaf áskorun að veita aðgengi að. Við erum þessum sérfræðingum sem koma frá alls konar löndum og þekkja áskoranir okkar að gefa vinnuna sína óendanlega þakklát.” segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir hjá Rauða Krossinum

Gefa að lágmarki þrjá tíma – 40+ sjálfboðaliðar taka þátt

Hver sérfræðingur býður fram að lágmarki þrjá tíma og margir bjóða fleiri eða aukinn stuðning. Skjót viðbrögð, gjafmildi og gæska næstum 40 sjálfboðaliða hafa farið langt fram úr björtustu vonum allra aðstandenda verkefnisins. Við þökkum öllum sjálfboðaliðum sem hafa komið að verkefninu hjartanlega fyrir.

Hér má sjá myndband af því hvernig stuðningstorgið virkar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur fengið nóg og vill verðlækkanir – „Þegar krónan veikist hækka verðin strax“

Vilhjálmur fengið nóg og vill verðlækkanir – „Þegar krónan veikist hækka verðin strax“
Fréttir
Í gær

Flosi ómyrkur í máli um árin í ferðaþjónustunni – „Mér þótti yfirmenn mínir oft hegða sér undarlega“

Flosi ómyrkur í máli um árin í ferðaþjónustunni – „Mér þótti yfirmenn mínir oft hegða sér undarlega“
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem reyndi að ræna Önnu prinsessu segist saklaus – „Ég var hræddari en hún“

Maðurinn sem reyndi að ræna Önnu prinsessu segist saklaus – „Ég var hræddari en hún“
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drengirnir með englaandlitin frömdu hræðilegt ódæði – Móðirin hylmdi yfir með þeim

Drengirnir með englaandlitin frömdu hræðilegt ódæði – Móðirin hylmdi yfir með þeim