fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Jón segir fólk hafa verið leitt í gildru – Greinilegt að margir þjást og eru á barmi örvæntingar

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 7. nóvember 2023 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Norðfjörð, fyrrverandi framkvæmdastjóri, vakti athygli á dögunum þegar hann steig fram og skrifaði grein um þá gríðarlegu fjármuni sem heimili landsins þurfa að greiða í vexti.

Jón heldur umfjöllun sinni áfram í Morgunblaðinu í dag þar sem hann segir að spilling og siðleysi sem lántakendur hér á landi búa við hafi rækilega opinberast síðustu daga. Beinir hann orðum sínum sérstaklega til hagsmunagæslumanna þjóðarinnar á Alþingi og segir að þeir einir geti breytt okri og græðgi bankanna með lagasetningu.

Benti á sláandi dæmi

Jón skrifaði grein á dögunum þar sem hann benti til dæmis á mann sem greiddi 350 þúsund krónur á mánuði af óverðtryggðum lánum. Af þeirri upphæð lækkuðu lánin um fimm þúsund krónur á mánuði. Hann nefndi fleiri sambærileg dæmi, til dæmis af lántakanda sem greiðir 177 þúsund krónur á mánuði en af þeirri upphæð fara 2.900 krónur til lækkunar á láninu.

Sjá einnigJóni brugðið þegar hann fór að skoða lánin hjá bönkunum og nefnir sláandi dæmi

Mikil umræða hefur verið um málið enda um gríðarlegt hagsmunamál að ræða fyrir heimili landsins. Jón segir að í kjölfar greinarinnar hafi fólk birt greiðsluseðla sem sýna bankaokrið og ræningjastefnuna svart á hvítu.

„Ég fékk mik­il viðbrögð og greini­legt að mjög marg­ir þjást fjár­hags­lega og eru á barmi ör­vænt­ing­ar vegna sví­v­irðilegr­ar ok­ur­stefnu í vaxta­mál­um.“

Íslandsbanki varpaði sprengju

Jón segir að það séu ekki bara heimilin sem þjást, margir bændur og fyrirtæki séu mjög illa á vegi stödd. Á sama tíma berji bankastjórnendur sér á brjóst og þrír stærstu „okurbankarnir“ hafi kynnt ofurhagnað sinn fyrstu níu mánuði ársins sem er um 60 þúsund milljónir króna.

Sjá einnig: Heimir bjó lengi á Englandi: Bankarnir þar hefðu aldrei komist upp með það sama og hér – „Þetta er algjört hneyksli“ 

„En Íslands­banki varpaði sprengju. Til­kynn­ing kom frá bank­an­um um vaxta­hækk­an­ir á út­lán­um, meðal ann­ars að fast­ir vext­ir óverðtryggðra hús­næðislána myndu hækka um 0,8 pró­sentu­stig. Eng­ar skýr­ing­ar fund­ust frá bank­an­um, en risa­stór sekt vegna lög­brota hans við sölu á hlut rík­is­ins gæti verið ástæðan. Þannig gæti Íslands­banki látið viðskipta­menn sína greiða sekt­ina eða hluta henn­ar. Því­lík­ur ósómi ef rétt reyn­ist.“

Fátt um lausnir hjá ráðamönnum

Jón birtir svo samantekt um viðbrögð ráðamanna síðustu daga. Þannig hafi Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagt í viðtali við DV að háir vextir hér á landi væru pólitísk ákvörðun Sjálfstæðismanna. Lítið hafi komið frá forystumönnum ríkisstjórnarinnar og engin samstaða virðist þeirra á milli um leiðir til lausna og ekki liggi fyrir nein verkáætlun í málinu.

Jón segir ráðamenn þjóðarinnar ekki hafa neina undankomuleið með að finna lausnir með að koma fólki úr þeim fjötrum sem þeir hafa skapað skilyrði  fyrir. Landsmenn eigi skýlausan rétt á að geta búið við fjárhagslegt öryggi.

Okrið hvílir þungt á mörgum

Hann beinir svo orðum sínum að Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra

„Stjórn­völd réðu seðlabanka­stjóra og hann geyst­ist fram á fjár­mála­völl­inn og lækkaði vexti á mikl­um hraða. Hann birt­ist eins og súper­mann og var svo klár og vin­sæll að Stöð 2 sá ástæðu til að kjósa hann mann árs­ins 2022. Fólk tók lán til hús­næðis­kaupa á viðráðan­leg­um vöxt­um í góðri trú um að nú væri loks­ins komið fólk með viti í Seðlabank­ann.“

Jón segir að Ásgeir hafi ekki verið lengi í paradís og mikil mistök verið gerð með alltof hröðum vaxtalækkunum. „Verðbólga fór vax­andi og nokkr­um vik­um seinna voru bank­arn­ir komn­ir með okrið upp úr öllu valdi og fólk stóð varn­ar­laust í boði stjórn­valda og Seðlabank­ans.“

Hann segir að lokum að fólk hafi verið leitt í fjárhagslega gildru.

„Fyr­ir­komu­lag lána­mála er bara mann­anna verk. Eng­in sam­keppni virðist vera milli banka­stofn­ana og „lánasamningar“ eru í raun ekki samn­ing­ar, held­ur skil­yrði sem lán­tak­end­ur hafa ekk­ert um að segja. Það er al­veg ljóst að banka­okrið hvíl­ir þungt á mörg­um. Stjórn­völd verða að taka málið föst­um tök­um. Þetta verður að stöðva og það verður að leysa fólk úr gildrunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar
Fréttir
Í gær

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
Fréttir
Í gær

VÆB áfram í Eurovision!

VÆB áfram í Eurovision!