fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Þórdís Lóa með skýr skilaboð: „Nei, þetta er ekki komið“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. október 2023 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að staða kynjanna í samfélaginu sé enn ójöfn og raunverulegt jafnrétti ekki í höfn.

Kvennafrídagurinn er í dag en eins og kunnugt er hefur verið boðað til verkfalls kvenna og kvára í tilefni dagsins.

Þórdís Lóa rifjar upp í aðsendri grein á vef Vísis að hún hafi verið ungt stelpuskott á Arnarhóli árið 1975 þegar kvennafrídagurinn var fyrst haldinn.

„Ég man eftir mömmu að steyta hnefann til merkis um baráttuna og syngja hástöfum með. Ég kann öll þessi baráttulög og textarnir eru innbyggðir í minnið, sem er til merkis um hvað lögin voru sungin mikið og spiluð í útvarpi. Ég hef mætt á alla fundi síðan þá sem haldnir hafa verið á þessu degi. Oft hef ég hugsað, er þetta ekki bara komið? Alltaf kemst ég að sömu niðurstöðu. Nei þetta er ekki komið og í raun enn langt í land og því ætla ég að halda áfram að taka þátt í baráttunni.“

Ekkert gerist af sjálfu sér

Þórdís Lóa var formaður Félags kvenna í atvinnulífinu á árunum 2013 til 2017 og bendir á að á þeim tíma hafi verið settur kynjakvóti á stjórnir fyrirtækja þar sem hvorki gekk né rak í því að auka fjölbreytileika í stjórnum.

„Sýnileiki kvenna úr atvinnulífi í fjölmiðlum var í skötulíki og komum við á samstarfsverkefnum við Rúv til að kippa því í liðinn. Við komum á Jafnvægisvoginni, hreyfiaflsverkefni sem hafði það að markmiði að auka jafnvægi í efsta lagi fyrirtækja og til að virkja viðskiptalíf í að verða fyrirmynd jafnréttis annarra þjóða.“

Þórdís Lóa segist ekki rifja þetta upp til að ylja sér við minningar góðra tíma heldur vill hún varpa því fram að þessi sporganga FKA sé ein af ástæðum þess hversu vel atvinnulífið hefur tekið í Kvennaverkfall árið 2023.

„Það er alveg ljóst að það gerist ekkert af sjálfu sér. FKA ákvað að vera hreyfiafl kvenna í atvinnulífinu og það hefur skilað sér. Þetta er verkefni sem FKA þarf að halda áfram að berjast fyrir af afli, því það er augljóst að þegar kynjakvótum sleppir er verulegur kynjahalli í hlutverkum framkvæmdastjóra, stjórnarformanna og stjórnarmanna fyrirtækja.“

Konur bera meiri ábyrgð á þriðju vaktinni

Þórdís bendir á að margt hafi breyst og áunnist á þeim 48 árum sem liðin eru frá 1975. Staða kynjanna sé enn ójöfn og raunverulegt jafnrétti ekki í höfn.

„Við búum enn við kynbundinn vinnumarkað, þar sem framlag hefðbundinna kvennastétta er minna metið. Konur bera enn að stærri hlut ábyrgð á heimili og þriðju vaktinni. Við eigum enn eftir að fá allt samfélagið í okkur í lið þegar kemur að fjölbreytileika kynjanna og að víkja frá kynjatvíhyggjunni. Og allri jafnréttisbaráttu stafar stöðug ógn af bakslagi,“ segir Þórdís Lóa og bætir við:

„Það höfum við séð í erlendum fréttum, vestanhafs og austan, þar sem verið er að takmarka réttindi kvenna til að ráða yfir eigin líkama. Þetta sjáum við á Íslandi í dag þegar horft er til hinsegin samfélagsins, þá sérstaklega trans fólks og þeirra fordóma sem stöðugt dynja á því. Þetta sjáum við á samfélagsmiðlum með hatursorðræðu í garð innflytjenda, litaðs fólks og kvenna. Við þurfum að gæta okkur, að leyfa ekki íhaldssömum öflum að vaða uppi og takmarka mannréttindi annarra. Fyrir jafnt og frjálst samfélag þarf frjálslyndið að blómstra.“

Grein Þórdísar Lóu á Vísi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Í gær

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“