fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Afhentu frú Elizu PCOS bolinn

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 14. september 2023 09:49

Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frú Eliza Reid tók í vikunni á móti PCOS bolnum frá PCOS samtökum Íslands. Bolurinn ber nýtt og fallegt merki samtakanna. 

„Við sáum hana hlaupa í blágrænum bol í Reykjarvíkurmaraþoninu, en blágrænn (teal) er einmitt liturinn okkar,“ segir Guðrún Rútsdóttir, formaður samtakanna. „Við höfðum samband við hana og spurðum hvort við mættum færa henni bol og hún var svo góð að bjóða okkur á Bessastaði.“  Sigríður Rún, grafískur hönnuður hannaði nýtt merki samtakanna sem prýðir bolinn.

Mynd: Aðsend

Samtökin færðu Elizu bæði hlaupabol samtakanna og nýjan stuttermabol með merki samtakanna. „Framan á bolnum er leg og eggjastokkar, en þar sjást blöðrur, sem stundum eru kallaðar perlur, og er það eitt af einkennum PCOS. Merki samtakanna hannaði Sigríður Rún, grafískur hönnuður.“

PCOS samtökin eru ung samtök sem vilja láta til sín taka en þau urðu 2 ára fyrr í þessum mánuði. „September er vitundarvakningarmánuður um PCOS og við erum meðal annars búin að halda meðlimakvöld, erum að selja þessa snilldar boli og svo er auðvitað hápunkturinn, ráðstefnan okkar 23. September- PCOS hvað get ég gert,“ segir Guðrún.

Mynd: Aðsend

Á myndunum má sjá Guðrúnu Rútsdóttur, formann PCOS samtaka Íslands afhenda frú Elizu Reid bol með nýju merki samtakana. Einnig má sjá stjórn samtakanna, ásamt Elizu. Frá vinstri: Guðrún Rútsdóttir formaður, Þórunn Anna Elísdóttir, gjaldkeri, Elísa Ósk Línadóttir varaformaður, frú Eliza Reid, Júnía Sigurrós Kjartansdóttir ritari, Ásta Magnúsdóttir varakona og Elfa Ýr Mundell varakona. Á myndina vantar Ragnhildi Gunnarsdóttir meðstjórnanda.

Hvað er PCOS?

·       Heitir fjölblöðrueggjastokkaheilkenni á íslensku

·       Er innkirtlaröskun sem veldur óreglu á hormóna- og efnaskiptakerfi líkamans

·       Er ein algengasta orsök ófrjósemi kvenna

·       Eykur m.a. líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki 2, krabbameini, kvíða, þunglyndi og átröskunum.

·       Talið er að 8-13% kvenna og annarra leghafa séu með PCOS.

·       Um 70% einstaklinga með PCOS fái ekki greiningu

Meðal einkenna:

·       Óreglulegur tíðarhringur

·       Mörg stækkuð eggbú í eggjastokkum=fjölblöðrueggjastokkar

·       Aukinn hárvöktur í andliti og á líkama

·       hárlos á höfði

·       bólur á húð

·       aukin fitusöfnun, sérstaklega á maga

PCOS samtök Íslands

PCOS samtök Íslands voru stofnuð fyrir tveimur árum með það að markmiði að fræða almenning um PCOS og sjá til þess að fleiri fái greiningu og viðeigandi meðferð. September er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður um PCOS og 23. september munu samtökin halda ráðstefnu með yfirskriftinni PCOS-Hvað get ég gert? Ráðstefnan er opin öllum og er meðlimum PCOS samtakanna að kostnaðarlausu en kostar 1.000 krónur fyrir aðra.

Frekari upplýsingar má finna á Facebook og Instagram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag
Fréttir
Í gær

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Í gær

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu
Fréttir
Í gær

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“
Fréttir
Í gær

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks