fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fréttir

Harma andlát heimilislauss karlmanns – Vísað í skýra verkferla

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 10. júní 2023 11:00

Gistiskýlið Lindargötu 48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrr í vikunni var greint frá því að heim­il­is­laus karl­mað­ur á sextugsaldri hefði svipt sig lífi í lok maí eft­ir að honum var ítrekað vísað frá gistiskýlindu á Lindargötu í Reykja­vík. Ástæða þess að manninum var vísað frá er að Hafnarfjarðarbær neitaði að greiða gistinguna. 

Sjá einnig: Svipti sig lífi eftir ítrekaðar frávísanir frá gistiskýlinu – Hafnarfjarðarbær neitaði að greiða gistinguna

Heimildin fjallaði ítarlega um málið og óskaði eftir svörum frá Hafnarfjarðarbæ vegna málsins, þau bárust þó ekki fyrr en eftir að fréttin hafði birst.

„Hafnarfjarðarbær harmar þær fregnir að einstaklingur sem leitaði í gistiskýlið sé látinn og vottar aðstandendum innilega samúð,“ segir í skriflegu svari Árdísar Ármannsdóttur, samskiptastjóra Hafnarfjarðarbæjar, til Heimildarinnar. 

Segir í svarinu að Hafnarfjarðarbær sé með skýra verkferla varðandi einstaklinga sem leita til gistiskýla, eigi í góðu samstarfi við starfsfólk gistiskýlanna og leggi áherslu á að mæta þessum viðkvæma hópi einstaklinga með faglegri þjónustu, skilningi og ráðgjöf. 

„Félagsráðgjafar hjá Hafnarfjarðarbæ hafa frumkvæði að því að reyna að ná sambandi við einstaklinga sem leita til gistiskýlanna til þess að bjóða félagslega ráðgjöf og stuðning hvort sem er fjárhagslegan eða varðandi búsetu til skemmri eða lengri tíma.“ 

Gistiskýlin ekki búsetuúrræði heldur neyðarúrræði

Í svarinu segir að mikilvægt sé að hafa í huga að gistiskýlin í Reykjavík eru ekki búsetuúrræði heldur neyðarúrræði fyrir einstaklinga sem eru heimilislausir. 

„Hafnarfjarðarbær er með samning við Reykjavíkurborg um veitingu þjónustunnar og hefur nýleg hækkun á gistináttagjaldi hvorki haft áhrif á verklag sveitarfélagsins um þriggja daga gistiviðmið né á þjónustu til einstaklinga. Þjónusta gistiskýlanna er mjög mikilvæg fyrir þennan hóp einstaklinga, sem er oft á tíðum með flóknar og miklar þjónustuþarfir, en mikilvægt að hafa í huga að fleiri nætur í gistiskýli leysa ekki vanda þessa viðkvæma hóps og að sveitarfélag þarf að fá tækifæri til að grípa inn í og veita félagslega ráðgjöf og viðeigandi stuðning.“ 

Segir í svarinu að verklag sé þannig að eftir þriðju nóttina í gistiskýli sé einstaklingum með lögheimili í Hafnarfirði gert að leita sér aðstoðar hjá sínu sveitarfélagi áður en til áframhaldandi gistingar kemur. „Hefur slíkt vinnulag verið viðhaft hjá sveitarfélaginu um árabil í góðu samstarfi við starfsfólk gistiskýlanna. Engum einstaklingi hefur verið vísað frá án boða um önnur úrræði og ráðgjafar sveitarfélagsins boðnir og búnir til að finna leiðir og lausnir í öllum málum,“ segir að lokum. 

Gistinátta­gjald í neyð­ar­skýl­um Reykja­vík­ur­borg­ar hækk­aði 1. maí úr 21 þús­und krón­um í 46 þús­und krónur fyrir hverja nótt fyrir fólk með lögheimili utan Reykjavíkur.Lög­heim­il­is­sveit­ar­fé­lag greið­ir gistinátta­gjald­ið.

Fjallað er nánar um málið í Heimildinni.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik