fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Fjögurra barna faðir segir Ásgeir taktlausan: „Hefur núna hækkað vexti á lánum barnanna minna í þrettán skipti“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. júní 2023 12:58

Ásgeir Jónsson og Karl Guðlaugsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tannlæknirinn Karl Guðlaugsson segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra taktlausan.

Hann segir í pistli á Vísi að það sé hræsni hjá seðlabankastjóra að hækka lán barnanna hans þrettán sinnum en koma fram í fjölmiðlum í dag og „til að segja börnunum mínum hvernig þau eigi að leysa hækkandi greiðslubyrði, hvernig þau eigi að bregðast við því sem hann sjálfur framkvæmdi.“

„Þrjú af börnum mínum með mökum sínum fengu samþykkt greiðslumat til íbúðalánakaupa, tóku lán hjá banka og keyptu sér íbúðarhúsnæði.

Þessi húsnæðiskaup voru gerð eftir að Seðlabankastjóri talaði um að loksins gætu íbúðarkaupendur greitt sambærilega vexti af lánum sínum og jafnaldrar þeirra í Evrópu.

Mánaðarleg afborgun óverðtryggðs láns með breytilegum vöxtum var í byrjun kr. 176,000.- en er núna kr. 349,000.- og ber 9,34% vexti. Mismunurinn á fyrstu mánaðarlegu afborgun lánsins og þeirrar síðustu er kr. 173,000.-.

Þessi sami Seðlabankastjóri sem situr í fílabeinsturni sínum og hefur núna hækkað vexti á lánum barnanna minna í þrettán skipti, leyfir sér að koma í fjölmiðla í dag til að segja börnunum mínum hvernig þau eigi að leysa hækkandi greiðslubyrði, hvernig þau eigi að bregðast við því sem hann sjálfur framkvæmdi. Ég frábið mér taktlausar ráðleggingar Seðlabankastjóra til barnanna minna því þær einungis lengja í hengingarólinni og setja þau í enn meira skuldafangelsi.“

Karl vísar í viðtal Morgunblaðsins við Ásgeir í gær. Þar sagði Ásgeir meðal annars að hann hafi seinasta haust staðið í þeirri trú að verklýðshreyfingin hefði áttað sig á því að með því að elta verðbólgunna í kröfum sínum um launahækkanir, myndi það leiða til vaxtahækkana.

Sjá einnig: Segir Ásgeir kalla mótmælendur „heimska smábændur með ryðgaðar heykvíslar“ af valdahroka sem minni á Game of Thrones

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir að valdastéttin þoli ekki uppgang Höllu Hrundar – „Íslenskur almenningur sér í gegnum þetta“

Segir að valdastéttin þoli ekki uppgang Höllu Hrundar – „Íslenskur almenningur sér í gegnum þetta“
Fréttir
Í gær

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi