„Enginn ætti að sætta sig við minni lífsgæði þó hann kjósi að búa í Höfuðstað Norðurlands í stað höfuðborgarsvæðisins,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri SinfoniaNord / Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Vísar Þorvaldur þar til þeirrar slagsíðu sem ríkir þegar kemur að fjármögnun ríkis og sveitarfélaga til menningarstofnana.
„Leikfélag Akureyrar, SinfoniaNord og Hof fá aðeins 3-4% af því fjármagni sem veitt er í sambærilegar stofnanir á höfuðborgarsvæðinu. Samt sinnir Menningarfélag Akureyrar svæði sem telur um 35000 manns, eða um 10% þjóðarinnar, sem eru greinilega þyrstir í menningu. Þess vegna væri sanngjarnt að MAK fengi um 10% af því sem rennur til sambærilegra stofnanna á suðvesturhorninu til að geta sannarlega stundað atvinnumennsku í tónlist og leiklist með sóma,“ segir Þorvaldur Bjarni.
„Það mundi tryggja fjölda listamanna næga atvinnu og gera listafólki kleift að kjósa að búa annars staðar en í Reykjavík. En samt geta sinnt list sinni sem atvinnumenn í tónlist/leiklist/tækni. Enginn ætti að sætta þig við minni lífsgæði þó hann kjósi að búa í Höfuðstað Norðurlands Akureyrarbær í stað höfuðborgarsvæðisins. Upp og áfram Menningarfélag Akureyrar.“
Nú um liðna helgi lauk sýningum á söngleiknum Chicago í Samkomuhúsinu á Akureyri, en nær uppselt hefur verið á allar sýningar síðan í október.
„Svona á þetta að vera! En það var ekki bara uppselt vegna þess að það var vinsæll söngleikur í boði. Síðustu sex árin hafa SN og Leikfélag Akureyrar sameinað krafta sína undir merkjum Menningarfélag Akureyrar. Það þýðir að hvað eftir annað höfum við getað sett upp glæsilegar sýningar í fullri stærð með eins marga hljóðfæraleikara og þarf í hvert sinn. Sameinuð þurfum ekki að gera málamiðlanir. Þess vegna hafa gestir Chicago og Kabarett fengið söngleikina beint í æð eins og þeim var ætlað að hljóma af höfundum þeirra. Þetta er ekki bara gott fyrir menningarsamfélagið heldur líka fyrir þessa margslungnu hljómsveit sem SN er. Stundum erum þau 90 að spila, stundum 40, oft bara 20. Oftast eru þetta stakir tónleikar. En þegar farið er í samstarf við LA, Íslenska óperan / The Icelandic Opera, afþreyingarverkefnið SinfoniaNord og SENA LIVE og svo framvegis verða þetta stundum tveir, fjórir, sex eða fimmtíu tónleikar eins og í tilviki Chicago. Þetta sýnir áhrifamátt MAk í Íslensku menningarlífi. Þess vegna þarf að leiðrétta hvernig menningarstofnanir á Íslandi eru fjármagnaðar af ríki og bæ.“