Skiptum er lokið í þrotabúi Já iðnaðarmanna Art2b verkstæði ehf. sem var í eigu Jóhanns Jónasar Ingólfssonar, sem er þekktur glæpamaður og kennitöluflakkari. Jóhann hefur rekið verktakafyrirtæki undir merkjum Já iðnaðarmanna um nokkurra ára stkeið en rekstrarfélögin á bak við fyrirtækin hafa þrisvar sinnum orðið gjaldþrota á undanförnum árum. Nú kemur Jóhann að rekstri annars fyrirtæksi, Húsaviðgerðir og fleira ehf., sem skráð er á móður hans sem er fædd árið 1939.
Já iðnarmenn Art2b verkstæði ehf. var úrskurðað gjaldþrota 27. september 2018 en skiptum lauk rúmum fjórum áður síðar, þann 22. desember 2022. Lýstar kröfur í búið voru alls 222,5 milljónir króna en forgangskröfur upp á 24,4 milljónir króna voru að fullu greiddar og þá fengust 8,5 milljónir greiddar upp í almennar kröfur eða um 4,38%.
Sjá einnig: Sviðin jörð Jóhanns í Já iðnaðarmönnum
Í byrjun desember 2021 var Jóhann Jónas síðan dæmdur til að greiða 111 milljón króna sekt vegna skilasvika og peningaþvættis í tengslum við rekstur fyrirtækisins.
Eftirlitsaðilar og lögregla hafa reglulega fengið kvartanir og kærur vegna starfsemi Já verktaka. Hefur Jóhann Jónas og fyrirtækið meðal annars verið sakað um brot á iðnaðarlögum þar sem ófaglærðir starfsmenn hafi verið settir í verkefni án þess að hafa tilskilin réttindi til að vinna. Hafi viðskiptavinir margir hverjir setið eftir með sárt ennið eftir viðskipti við Já iðnaðarmenn og sömuleiðis birgjar.
DV hefur fjallað ítarlega um feril Jóhann Jónas í gegnum árin en hann hefur reglulega komist í kast við lögin og iðulega skilið eftir sig sviðna jörð. Afbrotaferil hans má rekja allt aftur til tíunda áratugs síðustu aldar. Í frétt Pressunnar í september 1992 kemur fram að Jóhann, sem þá var 35 ára gamall, hefði komist yfir tuttugu sinnum í kast við lögin á átján árum. Árið 1993 var Jóhann dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum og kynferðisbrot. Í kjölfarið ákvað hann að yfirgefa landið og sneri ekki aftur fyrr en dómurinn gegn honum hafði fyrnst.
Sjá einnig:
Jóhann stofnar enn eitt fyrirtækið – „Hann er gjörsamlega siðlaus“
Já iðnaðarmenn gjaldþrota öðru sinni