„Daprasta varnarframmistaða sem ég hef séð hjá íslensku landsliði,“ sagði Einar Örn Jónsson, þulur RÚV á HM í handbolta. Það er hálfleikur í síðasta leik Íslands í milliriðli á HM, en liðið er undir gegn Brasilíu, 18-22.
Íslenska vörnin hefur verið hörmuleg í fyrri hálfleik og markvarsla engin. Einnig hefur verið mikið um sóknarmistök, sérstaklega í hraðaupphlaupum. Kristján Örn Kristjánsson hefur leikið einna best fyrir liðið í hálfleiknum, en hann hefur skorað 4 mörk.
„Þessi vörn er ekki að ganga upp, ég hef verið þrjú ár að gagnrýna þetta,“ segir álitsgjafinn Logi Geirsson. Hann segir varnaruppstillingu liðsins vera mistök og það sé helsta orsök slakrar frammistöðu gegn liði sem ekki er talið í heimsklassa.
„Þetta er bara rugl,“ segir Logi.
Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að litlu máli skipti hvað Guðmundur landsliðsþjálfari segi við leikmennina í hálfleik því hann hafi augljóslega lítil áhrif á þá. Hann nái ekki að tala í þá stemningu.
Logi er ósammála þessu og segir að ekkert vanti upp á baráttu leikmanna heldur sé um að kenna rangri stjórnun á liðinu og rangri varnartaktík.