Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Modestas Antanavicius. Modestas er 46 ára gamall karlmaður en síðast er vitað af ferðum hans í Borgarnesi á laugardaginn, þann 7. janúar síðastliðinn.
Þeir sem hafa séð til hans eða vita hvar hann kann að vera niðurkominn eru beðnir að láta lögregluna á Vesturlandi vita í síma 4440300 eða setja sig í samband við Neyðarlínuna í síma 112.