fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Fréttir

Skuggalegur ofbeldisferill strokufangans Gabríels: Hópslagsmál, rán og blóðug átök í Borgarholtsskóla

Ágúst Borgþór Sverrisson, Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 20. apríl 2022 14:02

Gabríel Douane Boama

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að því er best er vitað er strokufanginn Gabríel Douane Boama enn á flótta undan réttvísinni. Fyrr í morgun staðfesti lögregla að hans væri enn leitað og engar fregnir hafa enn borist af handtöku. Gabríel strauk úr Héraðsdómi Reykjavíkur um sjöleytið í kvöld þegar mál hans var þar til meðferðar. Fréttablaðið vakti síðan athygli á því að strokufanginn hefði setti inn færslur á Instagram-síðu sína, tveimur klukkustundum áður en lögregla lýsti formlega eftir honum, og merkti hana meðal annars með staðsetningu í Vesturbæ Reykjavíkur.

Málið sem tekið var fyrir í Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkveldi snýr að ráni sem átti sér stað í júlí 2021. Þar þvingaði Gabríel, ásamt fjórum samverkamönnum sínum, einstakling til þess að millifæra 892 þúsund krónur af bankareikningi sínum í gegnum síma með hótunum um líkamsmeiðingar og líflát. Var upphæðin millifærð í þremur færslum inn á bankareikning Gabríels. Auk þeirrar ákæru hefur DV undir höndum aðra ákæru í fjölmörgum liðum þar sem Gabríel er ákærður fyrir ýmis brot.

Fyrst ákærður sextán ára gamall

Þrátt fyrir að vera aðeins tvítgur að aldri á Gabríel langan ofbeldisferil að baki. Hann var fyrst ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í nóvember 2018 ásamt tveimur öðrum fyrir utan Hagkaup í Skeifunni – þá aðeins sextán ára að aldri. Þremenningarnir veittust þar að tveimur mönnum og slógu þá margsinnis í höfuð og búk auk þess að sparka í búk þeirra eftir að fórnarlömbin féllu í jörðina. Hlutu fórnarlömbin margvíslega áverka, meðal annnars úlnliðsbrot.

Þá var Gabríel ákærður fyrir  brot gegn valdstjórninni með því að hafa í september 2019 ítrekað hótað lögreglumönnum við skyldustörf líkamsmeiðingum og lífláti í anddyri og fyrir utan Hótel Apótek í Austurstræti. Hótanirnir héldu svo áfram á meðan leið lá á lögreglustöðina við Hverfisgötu og þar innandyra einnig.

Blóðug átök í Borgarholtsskóla

Þávakti það þjóðarathygli þegar Gabríel, sem var ekki nafngreindur í fjölmiðlum á þeim tíma, var handtekinn eftir blóðuga árás í Borgarholtsskóla í janúar í fyrra. Fjórir nemendur voru fluttir á slysadeild eftir árásina þar sem hafnaboltakylfa og hnífar fóru á loft.

Hálfu ári síðar átti sér stað önnur meint líkamsárás sem Gabríel var ákærður fyrir í félagi við annan mann. Þar áttu tvímenningarnir að hafa veist að öðrum manni og slegið hann í andlitið með kylfu. Þá var Gabríel einnig ákærður fyrir að hafa slegið annan mann í lærið með kylfunni í kjölfarið.

Þá birti DV myndband af hrottalegri árás þar sem mikill fjöldi fólks með Gabríel í broddi réðst að einum manni við Dalveg í Kópavogi í ágúst 2021. Gabríel var ákærður fyrir að slá manninn nokkrum sinnum í höfuð, taka hann hálstaki og hélt honum meðan aðrir slógu hann í andlitið, felldi hann í jörðina og sló og sparkaði nokkrum sinnum í höfuð mannsins og búk. Af þessu hlaut fórnarlambið innkýlt brot í nefbeinum, opið sár á vör og munnholi, sár og mar á eyra og mar í kringum auga.

Þá var Gabríel ákærður fyrir að ráðast gegn 22 ára gamalli stúlku á Prikinu í október 2021 og slegið hana í andlitið. Að auki hefur Gabríel verið ákærður fyrir vörslu á fíkniefnum og stuld úr ÁTVR.

Að ofansögðu má leiða að því líkum að Gabríel eigi yfir höfði sér þungan dóm þegar hann kemst undir hendur réttvísinnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristín nefnir algeng mistök við fasteignakaup og hvernig hægt er að forðast þau

Kristín nefnir algeng mistök við fasteignakaup og hvernig hægt er að forðast þau
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Málfræðingur ver viðtengingarhátt – „Hvar er sómakennd ykkar?“

Málfræðingur ver viðtengingarhátt – „Hvar er sómakennd ykkar?“