Skipverjinn sem féll útbyrðis í Faxaflóa um helgina heitir Ekasit Thasaphong. Ekasit er fæddur árið 1980 en hann býr í Grindavík ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vísi hf. sem send var á fjölmiðla í samráði við fjölskyldu Ekasit.
Í tilkynningunni segir að Ekasit hafi komið ungur til Íslands og að hann hafi lengst af starfað hjá Vísi hf. síðan hann kom hingað.
Mikil sorg er í Grindavík þessa stundina en um leið samhugur. Haldin var bænamessa í Grindavíkurkirkju í gærkvöldi en Ragnar Rúnar Þorgeirsson, fyrrverandi stjúpfaðir Ekasit, ræddi við DV um messuna í dag. Ragnar sagði að bænastundin hafi verið áhrifamikil og að mikill samhugur sé á meðal Grindvíkinga.
„Það var smekkfull kirkja og mikið um faðmlög eftir messuna. Þetta var voðalega indælt. Það mættu allir í stjórninni hjá Vísi og sjálfur Samherjaforstjórinn kom líka. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim fyrir þetta,“ segir Ragnar. „Svo eftir messuna fórum ég og strákarnir mínir heim til hans og tókum utan um konuna hans og fólkið þar.“
Sjá einnig: Sorg og samhugur í Grindavík eftir hvarf skipverjans