fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Segja Reyni hafa brotið fjölmiðlalög og segja Mannlíf hafa fengið háar fjárhæðir til að halda úti níðskrifum um Róbert Wessmann

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 27. janúar 2022 17:57

Róbert Wessman. Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lára Ómarsdóttir, upplýsingafulltrúi Aztiq, sem er félag í eigu Róberts Wessmann, hefur sent tilkynningu á fjölmiðla þar sem Reynir Traustason og fjölmiðillinn Mannlíf, sem hann ritstýrir, eru borin þungum sökum.

Segir að Mannlíf hafi áður verið í eigu Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi starfsmanns Róberts sem hefur sakað hann um ofbeldi, og að útgefandi Mannlífs hafi fengið háar fjárhæðir fyrir að halda úti níðskrifum um Róbert.

„Samkvæmt þessum upplýsingum hefur Sólartún gefið út á liðnu ári reikninga til Skrúðás fyrir textaskrif og aðstoð við textaskrif og nema greiðslur Skrúðáss til Sólartúns tugum milljóna króna í fyrra,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur fram að Róbert Wessmann hefur sent Fjölmiðlanefnd bréf þar sem hann æskir þess að nefndin skoði sérstaklega greiðslur félagsins Skrúðáss til Sólartún.

Tilkynningin er hér í heild fyrir neðan. Í tölvupósti með tilkynningunni segir:

„Viðhengd er fréttatilkynning frá Aztiq varðandi meint brot Reynis Traustasonar og Mannlífs á Fjölmiðlalögum, siðareglum og fleiri lögum. Í henni kemur meðal annars fram að fyrirtæki Reynis Traustasonar hefur fengið greiddar tugi milljóna króna í fyrra fyrir níðskrif um Róbert Wessman, sem leiðir fjárfestahóp Aztiq, með það að markmiði að skaða orðspor hans og ímynd.“

 

Reykjavík, 27. janúar 2022

Ritstjóri og eigandi Mannlífs vís um brot á fjölmiðlalögum!

Róbert Wessman, sem leiðir fjárfestingafélagið Aztiq, hefur sent Fjölmiðlanefnd bréf þar sem hann fer þess á leit við nefndina að hún skoði sérstaklega greiðslur félagsins Skrúðáss til Sólartúns á liðnu ári. Áður hafði Róbert kært umfjöllun Mannlífs, sem er í meirihlutaeigu Sólartúns, til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands.

Þá hefur Róbert tilkynnt ranga skráningu Sólartúns í fyrirtækjaskrá til Skattrannsóknarstjóra en félagið er skráð sem ferðaþjónustufyrirtæki. Jafnframt hefur verið send ábending til Neytendastofu þar sem Mannlíf (Sólartún) kann að hafa gerst brotlegt við lög varðandi kostað efni.

Frá því í janúar árið 2021, eða allt frá því að fyrrum samstarfsfélagi Róberts Wessman, Halldór Kristmannsson, lét af störfum hjá Alvogen, hefur Mannlíf skrifað hátt í 70 greinar um Róbert og félög honum tengd í þeim tilgangi einum að rýra trúverðugleika hans sem og þeirra félaga sem hann stýrir, þar á meðal Aztiq. Þess ber að geta að Mannlíf var áður í eigu Halldórs Kristmannssonar.

Í fyrstu vöknuðu grunsemdir um að Halldór væri að láta Mannlífi í té gögn í þessum tilgangi en í byrjun janúar árs 2022 fékk Róbert staðfestar upplýsingar um að Skrúðás sem er í eigu Halldórs væri að greiða eiganda Sólartúns háar fjárhæðir til að halda úti níðskrifum um Róbert. Hefur þeim verið komið áfram til Fjölmiðlanefndar.

Samkvæmt þessum upplýsingum hefur Sólartún gefið út á liðnu ári reikninga til Skrúðás fyrir textaskrif og aðstoð við textaskrif og nema greiðslur Skrúðáss til Sólartúns tugum milljóna króna í fyrra.

Í samskiptum við ritstjóra Mannlífs undanfarið ár hefur Róbert líkt og  samstarfsfólk hans margoft reynt að leiðrétta og koma á framfæri ábendingum til Mannlífs án árangurs. Rangar fréttir hafa ekki verið leiðréttar, ekki hefur verið leitað viðbragða við fréttum og sjaldnast hefur verið haft samband áður en fréttir birtust á vef Mannlífs.

Það er ljóst að Mannlíf  hefur misst allan trúverðugleika sem fjölmiðill með því að taka á móti þessum greiðslum. Ítrekað hefur fjölmiðillinn verið vís um að brjóta á siðareglum Blaðamannafélags Íslands og á fjölmiðlalögum. Að auki hefur háttsemin sett umfjöllun annars fjölmiðils sem Sólartún á í annarlegt ljós. Öll skrif þessara miðla um málefni Róberts Wessman ættu því að detta dauð og ómerk niður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat