fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Hótar árás á Pólland – „Á sex sekúndum getum við sýnt ykkur hvað við getum“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 27. maí 2022 06:02

Ramzan Kadyrov. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pólverjar hafa staðið þétt við bakið á Úkraínumönnum síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar. Þeir hafa tekið á móti milljónum flóttamanna og veitt þeim skjól og aðstoðað við að komast áfram til annarra ríkja ESB. Pólverjar hafa einnig staðið uppi í hárinu á Rússum og hvatt til banns við innflutningi á gasi og olíu til ESB frá Rússlandi. Líklega má segja að Pólverjar hafi verið nánustu bandamenn Úkraínumanna síðustu mánuði.

Ramzan Kadyrov, sem er handbendi Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, hótar nú árás á Pólland vegna stuðnings Pólverja við Úkraínu.

Kadyrov ræður ríkjum í Téténíu í skjóli Pútíns og heldur íbúunum í heljargreipum. Hermenn hans eru þekktir fyrir ofbeldisverk og engin andstaða við yfirvöld er liðin.

Sjálfur kallar Kadyrov sig „fótgönguliða“ Pútíns. Í myndbandi, sem hann birti á mánudaginn, segir hann: „Úkraína er afgreidd. Ég hef áhuga á Póllandi. Hverju eru Pólverjar að reyna að áorka? Um leið og Úkraína hefur verið afgreidd getum við sýnt ykkur hvað við getum á sex sekúndum ef skipun berst.“

Kadyrov hefur oft gagnrýnt Vesturlönd með yfirlýsingum á samfélagsmiðlum, aðallega Instagram.

Hann sendi hersveitir til Úkraínu í upphafi stríðsins til að aðstoða Rússa en það var sannkölluð sneypuför. Hersveitir hans urðu fyrir miklu mannfalli og fengu litlu sem engu áorkað og sýndu hermenn hans að þeir eru ekki eins vel þjálfaðir og góðir hermenn og talið hefur verið.

Leiðtogi Téténa montaði sig af að vera að berjast í Úkraínu – Myndin sem hann birti kom upp um hann

Þeir hafa verið sakaðir um stríðsglæpi í Úkraínu. Til dæmis eru þeir sagðir hafa tekið þátt í aftökum á óbreyttum borgurum í úthverfum Kyiv.

Kadyrov birti myndir af sér á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist vera í Maríupól en þær reyndust vera teknar í Rússlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni