Fréttablaðið skýrir frá þessu. Segir blaðið að búið sé að senda gögn um konuna til Útlendingastofnunar og lögreglu. Konan vill sjálf ekki koma fram opinberlega eða í viðtal. Segir Fréttablaðið að reikna megi með að nánustu fjölskyldumeðlimir hennar fái einnig skjól hér á landi, að minnsta kosti tímabundið.
„Já, það hefur tekist að hindra fyrirhugaða brottvísun umbjóðanda okkar sem gengin var átta mánuði á leið. Vottorð fékkst frá lækni þess efnis að ekki væri forsvaranlegt að senda viðkomandi úr landi að teknu tilliti til ástands hennar,“ hefur blaðið eftir Magnúsi Norðdahl lögmanni.
Hart hefur verið deilt á þá fyrirætlun stjórnvalda að senda allt að 300 hælisleitendur úr landi á næstu vikum í kjölfar aukins ferðafrelsis eftir Covid. Meðal annars hefur Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, fordæmt brottvísanirnar og Davíð Þór Jónsson, prestur, skóf ekki utan af hlutunum í gær þegar hann sagði að „fasistastjórn VG“ hefði ákveðið að „míga á Barnasáttmála SÞ“ með því að senda fjölda barna úr landi og til Grikklands þar sem þau muni hafast við í fullkomnu reiðuleysi á götum úti.
Fréttablaðið hefur eftir Magnúsi að ljóst sé að stjórnvöld séu ekki bundin af lögum, hér sé um pólitískt val að ræða. Efnismeðferð sé meginreglan samkvæmt núgildandi lögum.