Það er því óhætt að segja að stríðsrekstur Rússa gangi alls ekki eins og þeir stefndu að . Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við Danska ríkisútvarpið að það sé „ansi dramatískt“ að hafa misst svo stóran hluta herliðsins eins og Rússar hafa gert.
Hann sagði að ef rétt reynist þá segi það mikið um getu úkraínsku varnarsveitanna og að með tímanum muni þetta þýða að Rússar geti ekki náð markmiðum sínum.
Breska varnarmálaráðuneytið segir að þetta mikla mannfall Rússa þýði að þeir muni eiga erfitt með að sækja fram næstu 30 daga. Mads Korsager, varnarmálasérfræðingur Danska ríkisútvarpsins, sagðist vera sammála þessu og sagði að raunar geti Rússar alveg misst getuna til að sækja fram. „Það er rætt um að innan ekki svo langs tíma, jafnvel nokkurra vikna, geti Rússar misst getuna til að halda núverandi sóknaraðgerðum sínum áfram því þá skortir tækjabúnað og hermenn. Þeir munu einfaldlega ekki geta gert stórar árásir ef hlutirnir breytast ekki mikið,“ sagði Korsager.
Kharkiv, sem er næst stærsta borg Úkraínu, er nú runnin úr greipum Rússa, að minnsta kosti að sinni. Með gagnsókn hefur úkraínska hernum tekist að hrekja rússneskar hersveitir, sem hafa haldið uppi hörðum árásum á borgina vikum saman, á brott og segjast hafa hrakið þær yfir til Rússlands. Nú eru rússnesku hersveitirnar það langt frá borginni að stórskotalið þeirra getur ekki haldið uppi skothríð á hana en Rússar létu stórskotaliðsskothríð dynja á borginni um langa hríð auk þess sem þeir skutu flugskeytum á hana. Mikið mannfall hefur orðið í borginni meðal almennra borgara og mikil eyðilegging. Nú er þó rólegra þar yfir eftir að rússnesku hersveitirnar voru hraktar á brott.